Kona sem leigir hjá Félagsbústöðum íhugar málsókn gegn fyrirtækinu í kjölfar þess að veggjalús fannst í íbúð hennar í ónefndu fjölbýlishúsi í eigu Félagsbústaða. Sendi hún bráðatilkynningu um málið til fyrirtækisins í lok ágústmánaðar þar sem hún óskaði eftir milliflutningi eða tímabundnu húsnæði á meðan íbúð hennar yrði gerð búsetuhæf á ný, auk útlagðs kostnaðar við heimsókn meindýraeyðis sem konan þurfti að kalla út sjálf, tjóns vegna persónulegra muna hennar og húsgagna sem hefur þurft að farga vegna óværunnar. Félagsbústaðir hafa í svari sínu til konunnar hafnað óskum hennar.
Íhugar málsókn gegn Félagsbústöðum vegna veggjalúsar – „Ég get ekki lengur dvalið á heimili mínu“