Í september var greint frá því að ekkert skip frá Bandaríkjunum hefði tekið þátt í kafbátaleitaræfingu NATO við Íslandsstrendur sem var hluti af æfingunni Norður-Víkingi.
Martin O'Donnell, háttsettur talsmaður Atlantshafsbandalagsins (NATO), sagði við Vísi að Bandaríkjamenn hefðu þó enn tekið þátt í æfingunni, bara með öðrum hætti. Bandaríkin hafa yfirleitt leitt æfinguna síðustu ár en að þessu sinni voru það herlið Evrópulanda sem voru mest áberandi á æfingunni.
Blaðamaður New York Times spurði Marco Rubio, utanríkisráðherra Íslands, út í þessa umfjöllun á blaðamannafundi sem Rubio og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, héldu í Safnahúsinu í Reykjavík í dag.
„Það eru augljóslega hlutir að gerast í heiminum, það er engum hulin ráðgáta,“ svaraði Rubio og nefndi að Bandaríkjaher þyrfti að ráðstafa herafla sínum eftir aðstæðum og nú stæðu Bandaríkin í stríði við Íran í Mið-Austurlöndum, auk þess sem hluti heraflans þyrfti að manna stöðvar á Indlandshafi og Kyrrahafi.
„Þannig að ég held að þetta sé ekki varanleg ákvörðun. Ég held bara að hún hafi ráðist af tímasetningunni og að hún hafi skarast við yfirstandandi aðgerðir víða um heim,“ sagði hann.
„Við vorum samt með fólk á staðnum. Við erum enn staðráðin í því. Og eins og ég sagði þá er ég í heimsókn hér í dag vegna þess að þessi staður skiptir máli bæði efnahagslega og frá varnarsjónarmiði.“
Þorgerður Katrín sagðist ekki hafa neinu við svör Rubio að bæta.
„Marco útskýrði það mjög vel á fundi okkar hvers vegna þeir þyrftu herliðið annars staðar. Og ég vil undirstrika mjög sterkt samstarf okkar á sviði varnar- og öryggismála. Og það er engin breyting á því sem skiptir máli,“ sagði Þorgerður Katrín.
Bandaríkin hafa að undanförnu sett pressu á NATO-ríki um að leggja meira fé til varnarmála og í síðasta mánuði sendi Bandaríkjastjórn spurningalista á Ísland sem og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins þar sem meðal annars er spurt hvort viðkomandi ríkisstjórnir hafi stutt utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þá með opinberum hætti og kaupi hergögn af bandarískum vopnaframleiðendum.