Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kveðst vongóð að stéttarfélögin og Samtök atvinnulífsins nái saman og að kjarasamningar haldi.
„Ég ætla bara að leyfa mér að vera bjartsýn og að hlutirnir leysist núna á næstu klukkustundum og dögum og við verðum svo bara að taka stöðuna ef aðstæður breytast en það er allavega mikill velvilji hjá okkur til að liðka fyrir en það eru ákveðin atriði sem við getum ekki átt við sem snúa að hlutum sem eru á milli þessara aðila og þar þurfa SA og stéttarfélögin að ná saman,“ sagði Kristrún eftir að ríkisstjórnarfundi lauk síðdegis.
Fulltrúar VR, fagfélaganna og Landssambands íslenskra verslunarmanna hafa beðið eftir fulltrúum Samtaka atvinnulífsins í húsnæði ríkissáttasemjara síðan klukkan eitt eftir hádegi. Naumur tími er til stefnu en félög hafa frest til fimmtudags til að ákveða hvort segja eigi upp kjarasamningum eða ekki. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hvort funda eigi frekar.
Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar nánast tilbúinn
Kristrún segir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir því að kjarasamningar haldi séu vel á veg komnar. Þær beinist að breiðu sviði, meðal annars að húsnæðismálum og krónutölugjöldum en ríkisstjórnin ákvað í síðustu viku að takmarka flestar gjaldskrárhækkanir sínar við 2,5%.
Ekki var þó tekin ákvörðun um að hætta við hækkun á kílómetragjaldi. Gert er ráð fyrir að það hækki um 15,9% á næsta ári.
Bjarni Benediktsson gagnrýndi þá ákvörðun fyrr í dag og sagði hana hreinlega kynda undir verðbólgu sem gerði samningaviðræður við stéttarfélögin enn snúnari.
Kristrún segir að sú ákvörðun hafi verið nauðsynleg.
„Þetta er réttlætismál að fara yfir í aðra gjaldtöku en bara í gegnum olíugjald vegna þess að margir keyptu sig út úr kerfinu með því að fara í rafbílana og það var jákvæð þróun en gat bitnað á öðrum,“ segir hún.
„Nú þurfum við bara að ná að trappa okkur upp í einhverja hóflega stærð hvað þetta varðar og við fellum þetta meira inn í almenna kerfisbreytingu um krónutölugjöld,“ segir Kristrún sem segir að slíkar breytingar geti stundum verið óþægilegar.
„En það er margt sem við þurfum að gera sem er ekki alltaf þægilegt en við erum að reyna að ná lendingu á öðrum sviðum þannig að ég ætla að leyfa mér að vera vongóð,“ segir Kristrún.
Fjármálaráðherra einnig vongóður
Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra segir að ekki hafi verið mögulegt að falla frá hækkun kílómetragjalds ef halda á hallalausum fjárlögum.
„Það lá alltaf fyrir og við vorum búin að lýsa því yfir að ef að það ætti að gera frekari breytingar á tekjum í fjárlögum eða breyta því fyrirkomulagi þá þyrfti með einhverjum hætti að tryggja hallaleysi fjárlaga, engar slíkar tillögur hafa komið fram og þar með er það óbreytt,“ segir Daði Már.
Hann kveð einnig vongóður um að kjarasamningar haldi.
„Ég held að það sé nú yfirleitt þannig þegar samningar eru svona á elleftu stundu að það er þá sem að síðustu metrarnir eru stignir,“ segir Daðir Már. „Þetta er ekkert öðruvísi en hefur verið þannig að ég held að það eigi nú ekki að lesa neitt sérstakt í það.“