Loksins eignast Paramount Warner Bros. – Nýr fjölmiðlarisi verður til

Loksins eignast Paramount Warner Bros. – Nýr fjölmiðlarisi verður til

Loksins eignast Paramount Warner Bros. – Nýr fjölmiðlarisi verður til

Paramount lauk í dag við kaup á Warner Bros. Discovery. Við samrunann varð Skydance Corp. til, nýr fjölmiðlarisi sem sameinar tvö stærstu kvikmyndaver Hollywood, streymisveitur og nokkra af stærstu fjölmiðlum Bandaríkjanna.

Búast má við því að með tilkomu Skydance breytist Hollywood, kvikmyndaiðnaðurinn og fjölmiðlalandslagið í Bandaríkjunum til frambúðar.

Samruninn hefur verið harðlega gagnrýndur og þykir verulega umdeildur. Hann hefur mætt harðri andstöðu innan Hollywood. Margir óttast að sameining tveggja sögulegra keppinauta leiði til fjöldauppsagna, færri tækifæra fyrir skapandi fólk og skaðlegrar samþjöppunar á markaði.

Sögulegur dagur

Skydance dregur nafn sitt af fyrirtæki sem forstjórinn David Ellison stofnaði upphaflega áður en hann náði yfirráðum yfir bæði Paramount og Warner Bros. Discovery.

Skydance tilkynnti um samrunann á vef sínum í dag. Í henni segir að fyrirtækið stefni að því að byggja upp alþjóðlegt fjölmiðla- og afþreyingarfyrirtæki framtíðarinnar þar sem sköpun og tækni fari hönd í hönd.

„Sköpun er í fyrirrúmi hjá okkur sem og þarfir áhorfenda, tæknilegar nýjungar og alþjóðleg útbreiðsla.“

Ellison sagði í tilkynningu að dagurinn færi í sögubækurnar.

„Þetta er sögulegur dagur, ekki aðeins fyrir Skydance heldur fyrir allan kvikmyndaiðnaðinn. Frá upphafi var það metnaður okkar að leiða saman þessi tvö sögufrægu kvikmynda- og afþreyingarfyrirtæki og skapa öflugri keppnaut sem hefði yfir að ráða hæfileikum, fjármagni og umfangi sem þurfi til að segja frábærar sögur af öllum tegundum, á öllum miðlum og fyrir áhorfendur um allan heim. Nú er sá metnaður orðinn að veruleika.“

Undir Skydance verða meðal annars kvikmyndaverin Paramount og Warner Bros., fjölmiðlarnir CBS News og CNN og streymisveiturnar Paramount + og HBO Max. Ellison áformar að sameina streymisveiturnar tvær á endanum.

Skydance kemst þar með í fremstu röð samkeppnisaðila á markaðnum, við hlið streymisrisa á borð við Netflix og Youtube og skammt á eftir risunum Disney og Amazon.

Ítarlega var fjallað um samrunann í Heimskviðum í vor.

Dýr og erfið fæðing

Í umfjöllun The New York Times í dag kemur fram að strax í morgun hafi verið vísbendingar um að Ellison væri að taka stjórn yfir nýja fjölmiðlaveldinu og það strax.

Í höfuðstöðvum CNN á Manhattan-eyju í New York birtist merki nýja fyrirtækisins Skydance á öllum skjám og síðdegis er hann búinn að boða til starfsmannafundar þar sem hann ætlar að ávarpa allt fyrirtækið, það er Skydance.

Ellison og Ynon Kriez, hinn forstjóri Skydance, birtu minnisblað til starfsmanna í morgun. Yfirtitillinn var „Dagur 1“ og því lýstu þeir metnaðarfullri framtíðarsýn þar sem þeir hétu því meðal annars að keppa við nokkur af stærstu tækni- og fjölmiðlafyrirtækjum heims og leiða þróun í síbreytilegu afþreyingarumhverfi. Í minnisblaðinu var einnig ýjað að mögulegum niðurskurði.

„Að sameina tvö fyrirtæki hefur í för með sér breytingar, þar á meðal erfiðar ákvarðanir sem hafa áhrif á starfsfólk okkar. Við erum staðráðin í að standa að þessu ferli af yfirvegun og með virðingu að leiðarljósi.“

Samruni Paramount og Warner Bros. var ekki auðveld fæðing og alls ekki ókeypis. Til að taka yfir Warner Bros. Discovery þurfti Ellison að fara í uppboðsstríð við streymisveituna Netflix og bjóða níu sinnum í fyrirtækið. Á endanum tókst yfirtakan á 111 milljarða bandaríkjadali, jafnvirði 13.800 milljarða íslenskra króna.

Stjórnendur Netflix vildu ekki jafna tilboðið og sögðu að ekki væri lengur fjárhagslega aðlaðandi að kaupa fyrirtækið á þessu verði. Bandaríska dómsmálaráðuneytið samþykkti samrunann í júní en þar með var björninn ekki unninn.

Tólf ríki, með forystu Kaliforníu, lögðust gegn samrunanum, sögðu hann brjóta gegn samkeppnislögum og til þess gerðan að leiða til hærra verðs og færri kvikmynda og sjónvarpsþátta. Í júlí stöðvaði alríkisdómari í Kaliforníu samrunann og setti 14 daga lögbann á hann.

Á endanum lauk málinu með samkomulagi eftir að ríkjunum tókst að knýja fram ýmsar málamiðlanir, meðal annars stofnun nefndar til að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði CNN auk þess sem Ellison hét því að auka fjárfestingu í kvikmyndagerð um 1,5 milljarð bandaríkjadala á næstu fimm árum.

Samkomulagið felur einnig í sér strangar varnir gegn kvikmyndum sem framleiddar eru með gervigreind.

Paramount þarf að gefa út að minnsta kosti 30 kvikmyndir á ári hverju og takist fyrirtækinu ekki að uppfylla þann framleiðslukvóta verður því gert að selja 49 prósenta hlut í Miramax. Þar að auki þarf Paramount að tryggja að 20 prósent allrar kvikmyndaframleiðslu fari fram í Bandaríkjunum fyrstu tvö árin og næstu þrjú ár þar á eftir þarf hlutfallið að vera komið upp fyrir 30 prósent.

Ærið verk fyrir höndum

Ellison á því ærið verk fyrir höndum. Þar til á síðasta ári hafði hann aldrei rekið stórt fjölmiðlafyrirtæki.

Staða fjölmiðla í Bandaríkjunum er erfið. Sjónvarpsstöðvarnar, sem hafa verið ein helsta tekjulind fjölmiðlafyrirtækjanna, eru það enn en áhorf er alltaf minna og minna. Tekjur af streymisveitum hafa ekki enn náð að fylla upp í það gat. Traust til fjölmiðla er í sögulegu lágmarki og á sama tíma eru tæknifyrirtæki eins og Apple og Amazon að hasla sér völl á afþreyingarmarkaði. Það hefur leitt til hækkunar framleiðslukostnaðar.

Skuldir nýs fyrirtækis eru himinháar og stjórnendur hafa þegar sagt að þeir ætli að ná fram meira en sex milljörðum bandaríkjadala í hagræðingu á næstu þremur árum. Hluti af þeim sparnaði kemur með því að segja upp starfsfólki. Fyrirtækið hefur þó enn ekki upplýst hversu umfangsmiklar þær verða.

Samkvæmt skýrslu Los Angeles-sýslu í ágúst gætu 4.500 manns misst vinnu í kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum í Los Angeles næstu þrjú ár vegna samrunans.

Óvissa er líka mikil í fjölmiðlafyrirtækjunum CBS og CNN. CBS hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðustu mánuði eftir að Ellison eignaðist fyrirtækið. Hann fór meðal annars í uppsagnir, sinnaðist við fréttamenn út af ritstjórnarlegum ákvörðunum og skipaði nýjan yfirritstjóra, hina umdeildu Bari Weiss. Hún hefur enga reynslu úr sjónvarpi en stofnaði fjölmiðilinn The Free Press sem aðrir bandarískir fjölmiðlar telja íhaldssaman.

Weiss sagði í símtali við starfsmenn í morgun að ekkert myndi breytast eins og er. „Þetta er ferli sem á eftir að skýrast eftir því sem tíminn líður.“

CNN og Hollywood

Það er rétt að taka fram að Ellison er sonur Larry Ellison, meðstofnanda tæknifyrirtækisins Oracle, sem var stór styrktaraðili Donalds Trumps Bandaríkjaforseta fyrir síðustu forsetakosningar 2024.

Samband Ellison við Trump hefur skilið margt starfsfólk CNN eftir með óbragð í munninum. Hann hefur reynt að friða starfsfólk með því að setja Mark Thompson, forstjóra CNN, í sama hlutverk hjá nýju móðurfyrirtæki yfir fjölmiðlinum.

Thomson sagði á mánudag að hann hefði rætt við Ellison og stjórn Skydance og að hann treysti því fyllilega að þeir skilji mikilvægi sjálfstæðrar fréttamennsku og styðji bæði í orði og á borði þau gildi sem CNN hafi byggt sína starfsemi á.

Líklega verður mesta áskorunin fyrir Ellison að vinna traust í Hollywood í skugga ófyrirsjáanleika í tekjum kvikmyndahúsa, þegar gervigreind er að umbylta greininni og þegar efnisval áhorfenda ræðst í auknum mæli af algóritmum.

Ellison hefur lofað að gefa út 30 myndir í kvikmyndahúsum árlega, sú tala fer upp í 32 eftir tvö ár, ásamt loforðum um að ráðast í gagngera endurskoðun og uppbyggingu á tæknimálum fyrirtækisins. Hvernig honum tekst til verður að koma í ljós.

#bros #eignast #loksins #paramount #warner


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-10-06-loksins-eignast-paramount-warner-bros-nyr-fjolmidlarisi-verdur-til-489031

📰 Aðrar fréttir

Íslendingar lýsa busavígslunum sínum – „Í mínum framhaldsskóla missti einn businn putta“
📅 06.10.2026 👁️ 0
Íslendingar lýsa busavígslunum sínum – „Í mínum framhaldsskóla missti einn businn putta“
Íslendingar sem hafa farið í framhaldsskólanám, sérstaklega þeir af eldri kynslóðinni, þekkja vel þann grimmdarlega sið sem busavígsla er. Það er vígs...
„Það væri ekki hægt að skrifa þetta hand­rit“ - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
„Það væri ekki hægt að skrifa þetta hand­rit“ - Vísir
Fjallað hefur verið um aðdraganda heimsóknarinnar hér á Vísi; hvernig SOS greip til þeirra örþrifaráða að leita til almennings að hjálp við að finna H...
Margrét hyggst kæra til Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Margrét hyggst kæra til Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu - Vísir
Margrét var sakfelld fyrir ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara.  Landsréttur synjaði henni um leyfi til að áfrýja dóminum 2. október...
Christa Pike er vöknuð
📅 06.10.2026 👁️ 0
Christa Pike er vöknuð
Christa Pike, dauðadæmdur fangi í Tennessee fylki sem mistókst að taka af lífi í síðustu viku, er komin til meðvitundar. Að sögn lögmanna hennar getur...
Með fulla meðvitund eftir tvær misheppnaðar aftökutilraunir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Með fulla meðvitund eftir tvær misheppnaðar aftökutilraunir
Christa Pike er með fulla meðvitund eftir tvær misheppnaðar aftökur. Pike var í seinustu viku sprautuð tvisvar með banvænum skammti af pentóbarbítóli....
Green member behind Zionism motion named as 'close friend' of jailed al-Qaeda supporter in court
📅 06.10.2026 👁️ 0
Green member behind Zionism motion named as 'close friend' of jailed al-Qaeda supporter in court
Lubna Speitan offered to testify on behalf of Minh Quang Pham, who was jailed for 40 years after a Heathrow bomb plot investigation.
Afstaða til frumvarps um bókun 35 er afstaða til EES-samstarfsins
📅 06.10.2026 👁️ 0
Afstaða til frumvarps um bókun 35 er afstaða til EES-samstarfsins
Þingið á að geta klárað bókun 35. Með afstöðu til frumvarps um það felist afstaða til EES-samstarfsins, að mati utanríkisráðherra. Hún mælti fyrir fru...
Funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara
📅 06.10.2026 👁️ 0
Funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara
Fulltrúar VR, LÍV og Fagfélaganna hafa fundað með fulltrúa Samtaka atvinnulífsins, SA, í húsi ríkissáttasemjara í kvöld. Þetta staðfestir Halla Gunnar...
Segja boltann hjá stjórn­völdum - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Segja boltann hjá stjórn­völdum - Vísir
Halla Gunnarsdóttir formaður VR sagði við Vísi klukkan 16 í dag að fulltrúar VT, LÍV og fagfélaganna hefðu óskað eftir því að fulltrúar SA mættu á sin...
Þingmenn fimm flokka vilja þyrlu á Akureyri
📅 06.10.2026 👁️ 2
Þingmenn fimm flokka vilja þyrlu á Akureyri
Tveir létust og sex slösuðust í fjögurra bíla árekstri á Jökuldal um helgina. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang. Frá því að útkallið bar...
Kona full af kynþáttahatri truflaði bónorð – „Farið aftur til Mexíkó“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Kona full af kynþáttahatri truflaði bónorð – „Farið aftur til Mexíkó“
Ungur maður hafði valið fallegan stað í Laguna Beach í Kaliforníu til þess að biðja kærustu sinnar. Stundin átti hins vegar eftir að verða ógleymanleg...
Sigurður Helgi segir að það verði að taka ákvörðun um Heiðarfjall – „Þetta efni er hryllingur“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Sigurður Helgi segir að það verði að taka ákvörðun um Heiðarfjall – „Þetta efni er hryllingur“
Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, segir að íslensk stjórnvöld verði að taka ákvörðun um hreinsun Heiðarfjalls á Langanesi. Eitrunin ...
Ó­lík­legt að pestin berist til Ís­lands - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Ó­lík­legt að pestin berist til Ís­lands - Vísir
Tugir manna eru sagðir hafa verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu lést tveimur dögum eftir að hafa verið l...
US death row inmate Christa Pike conscious after failed execution, lawyers say
📅 06.10.2026 👁️ 1
US death row inmate Christa Pike conscious after failed execution, lawyers say
Pike, 50, continues to receive critical medical care while handcuffed in hospital, according to a statement from her lawyers on Tuesday.
US death row inmate Christa Pike awake and speaking after failed execution, lawyers say
📅 06.10.2026 👁️ 0
US death row inmate Christa Pike awake and speaking after failed execution, lawyers say
Pike, 50, continues to receive critical medical care while handcuffed in hospital, according to a statement from her lawyers on Tuesday.
11 leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgunar í fyrra
📅 06.10.2026 👁️ 1
11 leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgunar í fyrra
11 leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgana í fyrra, þetta segir Drífa Snædal talskona Stígamóta. Á síðastliðnum þremur árum leituðu alls 43 til Stígam...
Menn og hundar gættu öryggis Rubios
📅 06.10.2026 👁️ 2
Menn og hundar gættu öryggis Rubios
Fjölmennt lið lögreglumanna, sérsveitarmanna og leyniþjónustumanna - innlendra og erlendra og margir gráir fyrir járnum gættu öryggis Marco Rubios uta...
Opinn fyrir frekari uppbyggingu í varnarmálum
📅 06.10.2026 👁️ 3
Opinn fyrir frekari uppbyggingu í varnarmálum
Marko Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er opinn fyrir frekari uppbyggingu í varnarmálum hér á landi. Stuttri heimsókn hans lauk í dag. Hann hél...
Áður en frægðin bankaði á dyrnar klæddust þessir leikarar herklæðum
📅 06.10.2026 👁️ 3
Áður en frægðin bankaði á dyrnar klæddust þessir leikarar herklæðum
Á stóra skjánum birtast Hollywood-leikarar okkur í ýmsum hlutverkum, þeir eru draumaprinsinn í rómantísku gamanmyndinni, hetjan í hasarmyndinni, elsku...
Ó­þolin­mæði að fylla Læknavaktina - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Ó­þolin­mæði að fylla Læknavaktina - Vísir
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni. Tilefnið er frétt Vísis af því að hið árlega pestatímabil hafi leikið fjölda landsmanna grátt. Læknavaktin taki á...
Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálf­sögðu hringdi ég í pabba!“ - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálf­sögðu hringdi ég í pabba!“ - Vísir
Um þúsund manns voru í hátíðarsal Háskólabíós á sýningu myndarinnar á sunnudagskvöld en sýningin var færð þangað vegna gríðarlegrar eftirspurnar og va...
Íhugar málsókn gegn Félagsbústöðum vegna veggjalúsar – „Ég get ekki lengur dvalið á heimili mínu“
📅 06.10.2026 👁️ 3
Íhugar málsókn gegn Félagsbústöðum vegna veggjalúsar – „Ég get ekki lengur dvalið á heimili mínu“
Kona sem leigir hjá Félagsbústöðum íhugar málsókn gegn fyrirtækinu í kjölfar þess að veggjalús fannst í íbúð hennar í ónefndu fjölbýlishúsi í eigu Fél...
Lögreglumennirnir sem skutu 92 ára heilabilaðan mann með rafbyssu reknir – „Óhófleg valdbeiting“
📅 06.10.2026 👁️ 3
Lögreglumennirnir sem skutu 92 ára heilabilaðan mann með rafbyssu reknir – „Óhófleg valdbeiting“
Tveir breskir lögreglumenn sem skutu 92 ára heilabilaðan mann með rafbyssu, börðu með kylfu og tæmdu dós af piparúða framan í hafa verið reknir. Ranns...
Ekkert leyndar­mál að herinn sé önnum kafinn - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Ekkert leyndar­mál að herinn sé önnum kafinn - Vísir
Í september var greint frá því að ekkert skip frá Bandaríkjunum hefði tekið þátt í kafbátaleitaræfingu NATO við Íslandsstrendur sem var hluti af æfing...
Helmingur brotaþola kynferðisofbeldis voru börn
📅 06.10.2026 👁️ 3
Helmingur brotaþola kynferðisofbeldis voru börn
Börn verða oft fyrir stafrænu kynferðisofbeldi og geta einnig verið gerendur. Þekktustu brotin eru dreifing á myndum og svo gervigreindarmyndir þar se...
Three arrested after raid on gang accused of helping migrants pretend to be gay to get asylum
📅 06.10.2026 👁️ 3
Three arrested after raid on gang accused of helping migrants pretend to be gay to get asylum
Those targeted by Home Office immigration enforcement officers are accused of charging migrants up to £4,500 for fabricated evidence.
'Asos hacked': What can I do to protect myself?
📅 06.10.2026 👁️ 0
'Asos hacked': What can I do to protect myself?
Asos says people should not engage with the unauthorised notification and says it'll provide further information.
Vilja skriflega staðfestingu á að Ísland sé ekki umsóknarríki að ESB
📅 06.10.2026 👁️ 4
Vilja skriflega staðfestingu á að Ísland sé ekki umsóknarríki að ESB
Vilja skriflega staðfestingu á að Ísland sé ekki umsóknarríki að ESB Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og Stefán Vagn Stef...
Watch: Police raid on gang behind fake gay asylum claims
📅 06.10.2026 👁️ 4
Watch: Police raid on gang behind fake gay asylum claims
The arrests come after a BBC investigation in April revealed that law firms and advisers were helping migrants pose as gay in an effort to get asylum.
Þorsteinn spáir hækkun leiguverðs - Stefán telur mikið svigrúm fyrir minni hagnað
📅 06.10.2026 👁️ 3
Þorsteinn spáir hækkun leiguverðs - Stefán telur mikið svigrúm fyrir minni hagnað
Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, telur að áhrif leigubremsu á húsnæðismarkaðinn verði meiri en lagt er upp með í frumvarpi Ragnars ...
Kampa­kát Krist­rún og Trump í New York - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Kampa­kát Krist­rún og Trump í New York - Vísir
Kristrún fundaði með Trump í New York í síðasta mánuði, þegar hún var þar stödd vegna allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Hún ræddi síðan við Rubio í ...
Greinir skýran vilja til meira sam­starfs - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Greinir skýran vilja til meira sam­starfs - Vísir
Kristrún fundaði með Trump í New York í síðasta mánuði, á hliðarlínunum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hún ræddi síðan við Rubio í Reykjavík í ...
Litlar líkur á vinnanlegri olíu á Drekasvæðinu
📅 06.10.2026 👁️ 4
Litlar líkur á vinnanlegri olíu á Drekasvæðinu
Litlar líkur á vinnanlegri olíu á Drekasvæðinu Yf­ir­ferð Um­hverf­is- og orku­stofn­un­ar á eldri rann­sókn­um og mati ÍSOR bend­ir til þess að jarð­...
Leggja fram þing­mál um að draga um­sóknina til baka - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Leggja fram þing­mál um að draga um­sóknina til baka - Vísir
Þingsályktunartillagan var lögð fram í dag af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður S...
Kristrún vongóð að kjaradeilur leysist á næstu klukkutímum eða dögum
📅 06.10.2026 👁️ 3
Kristrún vongóð að kjaradeilur leysist á næstu klukkutímum eða dögum
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kveðst vongóð að stéttarfélögin og Samtök atvinnulífsins nái saman og að kjarasamningar haldi.„Ég ætla bara að ...
Stýrði leyni­þjónustu en nú sakaður um njósnir - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Stýrði leyni­þjónustu en nú sakaður um njósnir - Vísir
Hanning stýrði BND, sem er sú leyniþjónusta Þýskalands sem starfar á erlendri grundu, frá 1998 til 2005. Eftir það varð hann ráðherra en undanfarin ár...
Tear gas in Paris and Marseille as school protests spread and grow across France
📅 06.10.2026 👁️ 4
Tear gas in Paris and Marseille as school protests spread and grow across France
Crowds of mainly teenagers called for more resources for schools and an end to what they called police repression.
Engar leyni­skyttur gættu Ru­bio - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Engar leyni­skyttur gættu Ru­bio - Vísir
Töluverður viðbúnaður var vegna komu Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna til landsins. Rubio kom til landsins í gær en fór af landi brott um ...
Orðið á götunni: Næsti forstjóri Landsvirkjunar
📅 06.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Næsti forstjóri Landsvirkjunar
Þótt skammt sé síðan tilkynnt var um starfslok Harðar Arnarsonar er fólk mikið farið að velta fyrir sér hugsanlegum eftirmönnum. Ýmsum virðist umhugað...
Heilbrigðisráðherra um umfjöllun Kveiks: „Þau tilvik sem voru sýnd eru sorgleg“
📅 06.10.2026 👁️ 3
Heilbrigðisráðherra um umfjöllun Kveiks: „Þau tilvik sem voru sýnd eru sorgleg“
Heilbrigðisráðherra segir ekki hægt að fullyrða um hvort notkun geðrofslyfja á hjúkrunarheimilum sé óeðlilega mikil án nákvæmari gagna. Þau atvik sem ...
Tólf hafa sloppið úr bæ sem Rússar sitja um
📅 06.10.2026 👁️ 3
Tólf hafa sloppið úr bæ sem Rússar sitja um
Tólf manns tókst í september að sleppa burt úr bænum Oleshky og komast á yfirráðasvæði Úkraínu. Herinn náði völdum yfir bænum, sem er í Kherson-héraði...
Fara fram á afturköllun umsóknar að ESB
📅 06.10.2026 👁️ 3
Fara fram á afturköllun umsóknar að ESB
Formenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Miðflokksins vilja að umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði formlega ógild.Í þingsályktunartil...
Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar
📅 06.10.2026 👁️ 3
Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar
Hæstiréttur hafnaði í gær beiðni landeigenda um að áfrýja dómi héraðsdóms um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til æðsta dómstigsins.Landeigendur t...
Spain approves 21 new housing measures affecting renters, landlords and holiday lets
📅 06.10.2026 👁️ 3
Spain approves 21 new housing measures affecting renters, landlords and holiday lets
The Spanish Government has approved a major new package of 21 housing measures that could have significant implications for renters, landlords, first-...
Að gera kjósendum upp skoðanir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Að gera kjósendum upp skoðanir
Erna Bjarnadóttir skrifar: Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið hafa birst nokkrar greinar sem fjalla um ...
Macron boðar ráðherra á fund vegna mótmæla
📅 06.10.2026 👁️ 3
Macron boðar ráðherra á fund vegna mótmæla
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur boðað helstu ráðherra landsins á sinn fund í dag. Ætlunin er að þeir ráði ráðum sínum vegna mikilla mótmæla...
Best websites to buy Bitcoin with a Credit Card in 2026: 5 services we compared
📅 06.10.2026 👁️ 4
Best websites to buy Bitcoin with a Credit Card in 2026: 5 services we compared
The best websites to buy Bitcoin with a credit card need to do more than accept a Visa or Mastercard number at checkout. Card acceptance depends on th...
Fær ekki frekari endurgreiðslu á leigu vegna íbúðar sem kviknaði í
📅 06.10.2026 👁️ 4
Fær ekki frekari endurgreiðslu á leigu vegna íbúðar sem kviknaði í
Kærunefnd húsamála hefur hafnað kröfu konu um hærri endurgreiðslu, en hún hafði þegar fengið, á leigu fyrir íbúð sem varð altjón í vegna bruna. Konan ...
Þjóðkirkjan verulega ósátt og skorar á Alþingi að fara að lögum
📅 06.10.2026 👁️ 4
Þjóðkirkjan verulega ósátt og skorar á Alþingi að fara að lögum
Þjóðkirkjan gerir alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaða upphæð sóknargjalda. Er raunar skorað á Alþingi að fara að lögum um gjaldið og hækka hina fy...
Hafnar sæl­gætis- og fæðingar­or­lofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Hafnar sæl­gætis- og fæðingar­or­lofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 - Vísir
Þorgerður hafnaði gagnrýninni og sagði frumvarpið eiga að tryggja réttindi einstaklinga og fyrirtækja sem íslensk lög tryggðu þeim ekki með fullnægjan...