Christa Pike, dauðadæmdur fangi í Tennessee fylki sem mistókst að taka af lífi í síðustu viku, er komin til meðvitundar. Að sögn lögmanna hennar getur hún talað.Sjónvarpsstöðin NBC greinir frá þessu.Eins og flestir vita mistókst að taka hinn dæmda morðingja Christu Pike af lífi í fangelsi í Nashville í Tennessee í lok september. Lifði hún af tvær sprautur af pentóbarítal eitri en missti meðvitund og var flutt á spítala.Ekki var vitað hvort hún myndi nokkurn tímann vakna úr dáinu en nú er hún vöknuð að sögn lögmanna hennar. Ekki nóg með það þá getur hún talað.
Christa Pike er vöknuð