Margrét var sakfelld fyrir ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Landsréttur synjaði henni um leyfi til að áfrýja dóminum 2. október 2026, að því er fram kemur í tilkynningu þar sem Margrét boðar sömuleiðis mál fyrir Evrópudómstólnum.
Málið hófst eftir að Barbara sakfelldi Margréti árið 2023 fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdaroglu baráttukonu. Í kjölfarið birti Margrét færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún kallaði Barböru „lausláta mellu“ og hélt því fram að vitnisburðir í máli hennar hefðu verið falsaðir. Um hefði verið að ræða „plott“ til að fá hana sakfellda.
Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi síðar Margréti fyrir ærumeiðingar í garð Barböru. Í byrjun júní var Margrét dæmd til að greiða tvö hundruð þúsund króna sekt eða sitja í fangelsi í fjórtán daga.
Í tilkynningu frá Margréti segir að kæran til Mannréttindadómstólsins muni einkum byggja á 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð og 10. gr. um tjáningarfrelsi.
Meðal álitaefna sé að Margrét hafi óskað eftir að leiða vitni sem hún taldi geta stutt þann staðreyndagrundvöll sem hún byggði ummæli sín á, en leiðslu nokkurra þeirra var synjað.
„Við sakfellingu var síðan meðal annars talið að alvarlegar staðhæfingar hennar væru ekki studdar nægilegum sönnunargögnum,“ segir í tilkynningunni.
Margrét vildi leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralangt einelti af hálfu Sigríðar.
„Margrét mun ekki fara fram á að Mannréttindadómstóllinn taki afstöðu til persónulegra ásakana um einstaka dómara, heldur hvort íslenska ríkið hafi tryggt henni réttláta málsmeðferð og hvort refsiverð skerðing á tjáningarfrelsi hennar hafi verið nauðsynleg og meðalhófskennd samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu,“ segir í tilkynningunni þar sem tekið er fram að kæran sé nú í undirbúningi og verði send Mannréttindadómstól Evrópu í Strasbourg.