11 leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgana í fyrra, þetta segir Drífa Snædal talskona Stígamóta. Á síðastliðnum þremur árum leituðu alls 43 til Stígamóta vegna hópnauðgunar.
Í Kastljósi kvöldsins var Cornell-málið svokallaða tekið fyrir. Málið vísar til meintrar hópnauðgunar sem átti sér stað árið 2024 en þá greindi kona sem kölluð er Jane Doe háskólalögreglu frá hópnauðgun sjö karlkyns nemenda. Ástæðan fyrir því að málið er á ný í fjölmiðlum er sú að Jane Doe höfðaði einkamál gegn Cornell en við rekstur málsins komu í ljós skjáskot úr hópspjalli 57 karlmanna þar sem rætt var á opinskáan og grófan hátt um meinta hópnauðgun á meðan hún átti sér stað.
Drífa segir tölfræði Stígamóta sýna fram á það að hópnauðganir eigi sér stað á Íslandi. Í flestum tilvikum eru gerendurnir fleiri en tveir, segir Drífa.
„Það sem við getum staðfest er að hópnauðganir tíðkast hér á Íslandi, því miður, eins og önnur kynferðisbrot.“
Cornell-málið frábrugðið öðrum kynferðisbrotamálum
Cornell-málið er sérstakt að því leytinu til að 57 karlmenn fengu vitneskju um að nauðgunin væri að eiga sér stað á hópspjalli. Þá voru skilaboð á borð við „frí píka í boði“ send á spjallið og „er enn opið“.
Drífa segir sérstöðu þessa máls beinast að þeim fjölda karlmanna sem sitji hjá og tilkynni ekki um ofbeldið.
„Þér hefnist fyrir það samfélagslega ef þú ætlar að fara að rugga bátnum, ef þú ætlar að fara að saka einhvern um kynferðisbrot, það virðist vera alvarlegra en að fremja það eða segja frá því.“
Menntskælingar í Menntaskólanum við Hamrahlíð boðuðu til samstöðufundar með þolendum ofbeldis í dag og gekk fjöldi nemenda út til þess að sækja fundinn. Þær Ragnheiður Helga Víkingsdóttir og Hanna Imgront, nemendur við MH og skipuleggjendur, segja ákveðna ofbeldismenningu ríkja í samfélaginu.
„Við sjáum þetta á hverjum degi í fréttum eða hjá vinum okkar, sögur, upplifanir þolenda og því miður er kynferðislegt ofbeldi rosalega algengt,“ segir Hanna.
Þær segja að kynferðislegu ofbeldi sé ekki tekið nægilega alvarlega og gert sé grín að nauðgunum með bröndurum sem geri lítið úr upplifunum þolenda. Drífa tekur undir orð stelpnanna og segir að á meðan menningin breytist ekkert þá sé samfélagið að sætta sig við að stórt hlutfall kvenna verði fyrir ofbeldi.
„Það að verða fyrir ofbeldi eða að búa við þá ógn að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi er sennilega það sem hefur mest áhrif á líf kvenna á öllum aldri og ekki síst ungra kvenna.“