Tveir létust og sex slösuðust í fjögurra bíla árekstri á Jökuldal um helgina. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang. Frá því að útkallið barst og þangað til þyrlan lenti liðu 118 mínútur.
Þriðjungur allra útkalla Landhelgisgæslunnar 2024 var á Suðurlandi. Sjaldnar er óskað eftir aðstoð þyrlunnar á Austurlandi því flugtími frá Reykjavík þykir of langur.
„Ef við tökum til dæmis Egilsstaði þá er flugtími fyrir þær þyrlur sem við notum í dag um einn og hálfur tími í besta falli. Og ef við tökum það veður sem við búumst við að vera að berjast í að þá er það nær tveimur,“ segir Sigurður Ásgeirsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni.
Í greinargerð með tillögunni um staðsetningu þyrlu er bent á landfræðilega stöðu Akureyrar og að þar séu þegar til staðar mikilvægir innviðir. Flutningsmenn vilja jafnframt að fjórðu þyrlunni verði bætt við flota Gæslunnar og að áhöfnum verði fjölgað. Talið er að árlegur rekstrarkostnaður við þyrlu á Akureyri sé um 1,1 milljarður króna.
Ef hringur er dreginn um Reykjavík með 200 kílómetra radíus nær hann yfir um 47% af föstu landi á Íslandi. Ef sami hringur er dreginn frá Egilsstöðum nær hann yfir 45%. Ef miðjupunkturinn er á Akureyri þekur hringurinn 76% landsins.
Í Noregi og Svíþjóð eru um 60 kílómetrar frá höfuðborginni að næstu björgunarþyrlustöð og um 30 kílómetrar í Danmörku. Þyrlurnar eru síðan dreifðar um landið til þess að bæta viðbragðstíma.
Þá er óvissa með þyrlupallinn eftir að ný legudeild Sjúkrahússins á Akureyri tekur á sig mynd. Núverandi pallur er aðeins sjónhendingu frá núverandi inngangi bráðamóttökunnar.
Gert er ráð fyrir nýjum þyrlupalli, syðst á lóðinni við nýtt bílastæði sem nú er í undirbúningi.
Sá þyrlupallur er í um 350 metra fjarlægð frá inngangi að bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Ljóst er að ef þessi staðsetning verður fyrir valinu þarf að flytja sjúklinga síðasta spölinn með sjúkrabíl. Núverandi þyrlupallur er í rétt rúmlega 100 metra fjarlægð.