Fulltrúar VR, LÍV og Fagfélaganna hafa fundað með fulltrúa Samtaka atvinnulífsins, SA, í húsi ríkissáttasemjara í kvöld. Þetta staðfestir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, við fréttastofu.
Samtal hefur einnig verið í gangi við ríkið og því verður framhaldið á morgun.
Stéttarfélögin þrjú funduðu með SA í morgun og kynntu hugmyndir. Halla sagði fyrr í dag að þá hefðu ekki fengist svör við þeim hugmyndum. Þau vonuðust þá eftir frekara samtali við samtökin í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni.
Þegar fréttastofa náði tali af Höllu í kvöld voru þau enn á fundi og bjóst hún við að þau yrðu það eitthvað áfram. Stefnt var að því að fara heim upp úr tíu í kvöld. Þau stefna á að funda aftur með SA á morgun hjá ríkissáttasemjara.
Naumur tími er til stefnu í kjaraviðræðum en stéttarfélög hafa fram til klukkan 16:00 á fimmtudag til að ákveða hvort segja eigi upp kjarasamningum eða ekki.
Forsætisráðherra var bjartsýn á að sátt næðist á milli aðila vinnumarkaðarins á næstu klukkutímum eða dögum, eftir ríkisstjórnarfund síðdegis.