Pike er fimmtug en hún var árið 1996 dæmd til dauða fyrir aðkomu hennar að morði á skólafélaga hennar. Pike var þá um átján ára þegar hún ásamt kærasta sínum pyntaði og drap Colleen Slemmer, sem þá var nítján ára.
Þegar reynt var að taka hana af lífi með pentóbarbítal í æð tókst það ekki. Hún hafði verið sprautuð með tveimur skömmtum af lyfinu sem á að vera banvænt og dró það hana ekki til dauða. Þess í stað segja lögmenn hennar að höndin sem hún var sprautuð í hafi verið brennd og þakin blöðrum eftir aftökutilraunirnar.
Pike var flutt á sjúkrahús þar sem hún hefur verið síðan.
Sjá einnig: „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku
AP-fréttaveitan hefur eftir lögmönnum hennar að þeir séu þakklátir viðbragðsaðilum og starfsmönnum sjúkrahússins, sem hafi „komið fram við Christu eins og manneskju“ og hlúð að henni.
„Þrátt fyrir allar líkur er Christa Pike með meðvitund, getur talað og heldur áfram að fá gjörgæslumeðferð,“ sögðu lögmenn Pike í yfirlýsingu.
„Þrátt fyrir þau alvarlegu meiðsli sem hún hlaut á handleggjum sínum er hún enn í handjárnum og fjötruð við sjúkrarúmið. Bati hennar á sér vart hliðstæðu í læknisfræðinni.“
Sérfræðingur sem blaðamaður AP ræddi við segir að um jákvæða þróun sé að ræða fyrir Pike. Erfitt sé að spá í framhaldið og það hvenær hún muni ná það góðum bata að hægt verði að reyna aftur að taka hana af lífi.
Lögmenn Pike munu á morgun mæta í dómsal vegna máls hennar og ætla þeir að krefjast upplýsinga um hvað fór úrskeiðis. Þeir eru einnig að reyna að fá Bill Lee, ríkisstjóra Tennessee, til þess að koma í veg fyrir aðra aftökutilraun og milda dóm hennar í lífstíðarfangelsi.