Þingið á að geta klárað bókun 35. Með afstöðu til frumvarps um það felist afstaða til EES-samstarfsins, að mati utanríkisráðherra. Hún mælti fyrir frumvarpi um bókun 35 á Alþingi í dag.
Fjórða skipti sem málið er lagt fram
Þetta er í fjórða skipti sem þetta mál er lagt fram á Alþingi, bæði ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og núverandi ríkisstjórn hafa lagt það fram.
Bókun 35 er breyting á lögum um Evrópska efnahagssvæðið. Í þeirri breytingu felst að ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað.
Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum. Þetta segir orðrétt í frumvarpinu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti fyrir bókun 35 á Alþingi í dag.
„Það er alveg ljóst að valið er þingsins, valið er þingsins, og við eigum að geta klárað það hér. Með afstöðu til þessa frumvarps felst afstaða að mínu mati líka til EES samstarfsins, bara alls EES samstarfsins.“
Miðflokkurinn er á móti því að samþykkja frumvarpið, og eflaust fleiri þingmenn stjórnarandstöðu, og hefur verið heitt í hamsi vegna þessa. Þingmenn saka ráðherra um að gæta ekki hagsmuna Íslands.
„Mér blöskraði framsaga hæstvirts utanríkisráðherra hér um þetta mál, hálfsannleikur og sums staðar hreinar blekkingar um málavexti bókunar 35 og EES samningsins,“ sagði Sigríður Á. Andersen.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði ríkisstjórnina hafa sett málið á ís fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í sumar.
„En verkstjórnin mikla ákvað að venda sínu kvæði í kross, setja bókun 35, fyrsta mál ríkisstjórnarinnar, mikilvægt mál á ís og taka upp þjóðaratkvæðagreiðslu við Evrópusambandið sem síðan yfirtók alla umræðu í samfélaginu eins og ábyggilega var tilgangurinn.“
Síðdegis lögðu formenn Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar fram tillögu á Alþingi um að fela ríkisstjórninni að tilkynna Evrópusambandinu að Ísland sé ekki umsóknarríki um aðild að ESB og að engin umsókn þess efnis sé til staðar. Þar með segja flutningsmenn að fylgt sé vilja þjóðarinnar í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu.