Lögregla vinnur með Europol og lögreglu erlendis að rannsókn á stærðarinnar kókaínsmygli hingað til lands. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild, segir rannsóknina gríðarlega umfangsmikla.
Húsleitir og skýrslutökur eru framundan í tengslum við málið sem teygir anga sína til Brasilíu.
„Við komumst á snoðir um þetta mál fyrir nokkrum vikum síðan og þá hófst talsverð rannsókn, umfangsmikil rannsókn, og undirbúningur á málinu. Þetta skip var að koma frá Suður-Ameríku og stefndi á Straumsvík með súrál,“ segir Ævar Pálmi í viðtali við fréttastofu.
Málið er stærsta kókaínsmygl sem lögregla hefur stöðvað í sögu Íslands.
106 kílóum af kókaíni var smyglað til landsins með skipinu Koznitza sem kom frá Brasilíu. Að minnsta kosti níu hafa verið handteknir í tengslum við það og færðir í gæsluvarðhald, þar af eru Brasilíumenn, Rúmeni og allavega tveir Íslendingar.
Ævar segir engan hinna handteknu hafa verið skipverja í Koznitza.
„Efnin eru falin í því sem kallast sjókista sem er undir skipinu. Nú er ég ekki sjómaður en þetta er einhvers konar lúga sem hleypir vatni þarna í gegn eða eitthvað þvíumlíkt og er lokað með einhverri rist. Efnin voru falin í því rými.“
Lögregla á Íslandi hefur ekki séð sjókistu notaða undir smygl áður en slíkt þekkist erlendis. Ævar segir að farið hafi verið í þónokkrar húsleitir í tengslum við smyglið.
Hvaða verkefni eru fram undan hjá ykkur í þessari rannsókn?
„Þau eru mörg og af ýmsum toga. Ég get nú ekki farið kannski nánar út í það nema að það eru skýrslutökur sem liggja fyrir, alveg klárlega, og einhverjar húsleitir og frekari leitir og svo bara almenn rannsóknarvinna.“
Mögulega ætlað til sölu hérlendis
Spurður um hvort lögregla telji sig hafa handtekið alla sem komu að málinu segir Ævar Pálmi ekki tímabært að greina frá því.
Haldið þið að þetta hafi verið ætlað til sölu hérlendis?
„Það er eitt af því sem rannsóknin miðar að því að leiða í ljós. En efnin koma frá Suður-Ameríku til Íslands þannig að það má mögulega ætla það.“
Fyrir fjórum árum var 100 kílóa kókaínsending stöðvuð í Hollandi sem var á leið til Íslands. Við spurðum Ævar málin séu tengd.
„Á þessu stigi málsins sjáum við engin tengsl en það er eitt af því sem rannsóknin þarf og mun þá eftir atvikum leiða í ljós. Það er gríðarlega mikil vinna fyrir höndum. Vinna sem hefur þegar verið unnin er umfangsmikil og hún er ekkert síður umfangsmikil sú vinna sem nú fer fyrir hönd.“
Spurður um hvort smyglið tengist Sverri Þór Gunnarssyni, sem var árið 2023 ákærður fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða glæpastarfsemi í Brasilíu, segist Ævar ekki geta tjáð sig um það. Sverrir er þekktur á Íslandi sem Sveddi tönn.
„Það er bara eins og margt annað til skoðunar. Við veltum öllum steinum við, þessu tengt.“
Virði efnisins 2-3 milljarðar króna
Sem fyrr segir eru níu manns í varðhaldi vegna málsins. Ævar segir ekki hægt að útiloka að þeim eigi eftir að fjölga.
Eruð þið að leita að einhverjum?
„Mögulega.“
Hann segir unnið með Europol og lögreglu í tilteknum löndum að málinu. Samstarfið felist í almennri rannsóknarvinnu, rannsóknaraðstoð og upplýsingaöflun. Ævar getur ekki tjáð sig um hvort einstaklingar hafi verið handteknir erlendis í tengslum við smyglið.
Hvers virði voru efnin sem voru tekin þarna?
„Þessi efni eru að minnsta kosti einhvers staðar á þriðja milljarð, 2-3 milljarðar. Það er bara einfalt reikningsdæmi. Okkur skilst að á götunni sé grammið af hreinu kókaíni á 20-25 þúsund krónur og ef það er eitthvað búið að eiga við það þá er það eitthvað ódýrara. Þannig að þegar það er reiknað til enda þá verður talan eitthvað aðeins hærri.“
Ævar Pálmi segir að aðgerðir sem þessar hafi áhrif á fíkniefnamarkaðinn á Íslandi.
„Svona haldlagningar hafa klárlega áhrif á markaðinn. Við höfum góðan púls á því sem gerist hérna á götunum og það er alveg augljóst að þetta hefur áhrif á markaðinn og fíkniefnaneyslu yfir höfuð.“
Þá segir Ævar ekkert benda til þess að smyglið tengist starfsemi Straumsvíkur og álversins þar. Það sé eitt af því sem er til rannsóknar.