„Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ - Vísir

„Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ - Vísir

„Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ - Vísir

„Það er svo sjúklega gaman að rifja upp og skoða myndir og æðisgengið að hundruð vina hafi verið í trylltu dansandi stuði til eitt um nóttina á þriðjudegi,“ bætir Draupnir við og brosir út að eyrum.

Skemmtilegar veggmyndir af Draupni tóku á móti gestum.Sunna Ben

Draupnir er mikið afmælisbarn en hefur ekki alltaf náð að halda upp á það. Því var mikilvægt að fara alla leið með fögnuðinn á þessum tímamótum.

„Markmiðið mitt var að búa til ógleymanlegan viðburð og hitta sem allra flesta af vinum og ættingjum og var ég strax ákveðinn í að það yrði á afmælisdaginn sjálfan þótt hann bæri niður á þriðjudegi.

Ég hef rosalega oft verið erlendis á afmælisdaginn minn en hélt upp á fertugs- og þrítugsafmælin mín og var alltaf ákveðinn í að gera þetta grand og halda rækilega upp á fimmtugsafmælið. Auðvitað langaði mann að bjóða „öllum í heiminum“ en varð því miður að velja og hafna eins og gerist og gengur.“

Gestabókin í afmælinu var mega flott.Sunna Ben

Draupnir vildi láta veisluna byrja snemma, hafa allt fljótandi í veitingum í föstu og fljótandi formi, hafa viðburðarsalinn vel skreyttan sem algjöra glimmerbombu í stíl við þemað og vera með fjölbreytt skemmtiatriði.

„Ég lagði þó einnig gríðarlega áherslu á að það væri ei stanslaus dagskrá svo fólk hefði gott svigrúm í að spjalla og mingla.

Mér fannst áríðandi að til yrðu góðar myndir eftir kvöldið sem dýrmæt minning og var bæði með ljósmyndara og svokallað myndabox og á hundruð frábæra mynda frá kvöldinu.“

Sunna Ben ljósmyndari var á svæðinu og myndaði afmælisbarnið og glæsilega gesti.Sunna Ben

Eftir kvöldið stendur gleðin upp úr. 

„Ég er svo þakklátur hvað ég er ríkur af skemmtilegum vinum og voru ótal margir sem komu erlendis frá og utan af landi og ber ég þeim sérstaklega kærar þakkir fyrir að leggja á sig ferðalag til að mæta í herlegheitin. Það er ómetanlegt að eiga svona dýrmæta og góða vini.“

Blaðamaður ræddi nánar við Draupni um afmælisherlegheitin og tímamótin og fékk leyfi til að birta sannkallaða myndaveislu frá kvöldinu.

Draupnir fékk persónulegar og fallegar gjafir og á aragrúa af skemmtilegum myndum frá kvöldinu. Hér er hann með Lóu Dís Finnsdóttur sem var listrænn stjórnandi yfir viðburðinum og kom fram Danmörku til að sjá um allar skreytingar. Sunna Ben

Var þetta búið að vera lengi í undirbúningi?

Ég hef í nokkur ár hugsað út í daginn og var alltaf harðákveðinn í að gera eitthvað tjúllað. Ég er mjög skipulagður þótt ég segi sjálfur frá og var reglulega hripað í stílabókina góðu mis gáfulegar og raunhæfar hugmyndir. Svo fór allt af stað fyrir rúmu ári síðan. Svona veislu hristir maður ekkert einn fram úr erminni og var einvalalið af góðum vinum sem hjálpuðu mér við að gera þetta svona flott og skemmtilegt.

Ég er svo heppinn að minn allra besti Hálfdan æskuvinur rekur Kjarval og Fantasíu og kom auðvitað ekkert annað til greina en að halda veisluna hjá honum enda Fantasía flottasti staður Reykjavíkur að mínu mati og svo vel staðsettur í Austurstræti.

Hálfdan og Erla konan hans eru mikið veislufólk og voru lykilfólk í að skipuleggja allt með mér og við byrjuðum að skipuleggja gróflega fyrir rúmu ári. Ég var með nokkra svokallaða „verkefnastjóra“, setti allt vel tímanlega af stað og endanlega í lok apríl gekk ég úr skugga um að allt væri klappað og klárt þar sem ég var að fara í þriggja vikna vinnuferð erlendis sem fararstjóri fyrir Kolumbus ferðaskrifstofu, fyrst til Japan í tvær vikur og síðan í viku til Suður Frakklands.

Friðrik Ómar stórsöngvari var verkefnastjóri yfir tónlistaratriðunum og Hálfdan og Erla ásamt mér yfir öllu er tengist veislunni sjálfri og veitingum. Svo var Lóa Dís vinkona mín sem er grafískur hönnuður í Danmörku og sú mest skapandi manneskja sem ég þekki „listrænn stjórnandi“ útlits og skreytinga á öllu sem tengdist viðburðinum.

Hún var búin að útbúa sturlað flottar veggmyndir af mér sem skreyttu viðburðinn á Facebook og svo upp um alla veggi á Fantasíu ásamt því að vera búin að kaupa á annað hundrað blöðrur og allavega skraut og var Hálfdan svo yndislegur að leyfa okkur að umturna staðnum og breyta í stíl við þemað mitt sem var bling, hvítt og svart. 

Lóa Dís kom til landsins og verkefnastýrði okkur fjölda vina sem skreyttum allt hátt og lágt í Fantasíu og kom sjúklega smart út.

Draupnir ásamt Erlu og Hálfdáni og sonum þeirra.Sunna Ben

Voru einhver skemmtileg atriði?

Já heldur betur og allt gaumgæfilega skipulagt. Þetta byrjaði í rólegri kantinum og endaði svo í botnlausu dansandi djammi. Djassband tók á móti fólkinu og spilaði í einn og hálfan tíma.

Katrín Halldóra stór söng- og leikkona frænka mín og vinkona steig þá á stokk og söng yndisleg fjögur lög og þar á meðal afmælissönginn og lag sem hún söng í útförinni hjá mömmu heitinni. Hálfdan bauð svo fólkið velkomið og stjórnaði öllu yfir kvöldið.

Magni Ásgeirs menntaskólagóðvinur minn kom svo og söng nokkur vel valin lög rúmum klukkutíma síðar. Svo rétt fyrir tíu kom Þórunn Antonía eins og glimmerbomba og tók tvö uppáhalds lög og í kjölfarið hófst tjúlluð Eurovision dansmaraþonsýning og steig hver stórstjarnan af annarri á sviðið og gestirnir trylltust.

Friðrik Ómar og Regína Ósk byrjuðu auðvitað með This is my life og svo komu Hera Björk, Selma Björns, Einar Ágúst og Svala Björgvins og tóku ógleymanlegu Euro slagarana sína ásamt vel völdum danslögum í bland og var svo mikil gleði og orka, eflaust sjaldan verið meira stuð í miðbænum á þriðjudegi. Reynir Lyngdal var plötusnúður allt kvöldið og spilaði milli atriða og sá til að dansgólfið var þétt til eitt um nóttina og var ýkt frábær að vanda.

Magni Ásgeirsson var meðal þeirra sem tóku lagið.Sunna Ben

Hvernig líður þér á þessum tímamótum?

Stórkostlega vel þakka þér fyrir, mér finnst ég ennþá vera bara á allra besta aldri og elska að vera til og sinna mínum lífsstíl sem ég hef valið mér, sem er að lifa hratt og fjölbreytt, upplifa og læra og ferðast sem allra mest og vera í kringum mína nærandi stórkostlegu vini. Ég elska að plana og skipuleggja og að vera á útopnu og er lítið fyrir aðgerðarleysi og lognmollu.

Draupnir elskar að vera á útopnu og bauð gestum upp á vín, aðra drykki og glæsilegar veitingar.Sunna Ben

Hvað stendur upp úr frá kvöldinu?

Gleðin, samheldnin, öll sú ást og vinsemd sem ég upplifði og hve ríkur ég er af vinum og vandamönnum. Ég hefði auðvitað viljað miklu lengri tíma til að tala við hvern og einn en þegar þrjúhundruð manns koma saman og er mikið líf og fjör að þá eðlilega flýgur tíminn frá manni.

Hrafnhildur Hafsteinsdóttir og Draupnir Rúnar glæsileg.Sunna Ben

Varstu lengi að ákveða fötin og hvaðan koma þau?

Eftir að við Lóa Dís ákváðum þemað bling, hvítt og svart komst svona lokaskrið á hugmyndavinnuna við fötin. Jakkafötin keypti ég í uppáhalds búð í New York í fyrra og geymdi og svo var það Elsa Ásgeirs klæðskeri sem tók þau í algjöra „glimmer bombu yfirhalningu“ sem tókst óendanlega vel. Ég sagði henni að ég vildi kögur á jakkann, glimmer, lúðrasveitaborða niður buxurnar og að það væri eins og hefðu lent í gimsteinaregni. Hún handlímdi tæplega fimm þúsund steina á fötin.

Ég elska fötin og hún algjör listamaður. Skóna var kannski erfiðast að finna þar sem vildi há-há-háglans. Ég var búinn að skoða helling, meðal annars í Japan en fann þessa að lokum í flottri búð í Nice í Frakklandi viku fyrir afmælið.

Fötin hans Draupnis voru með tæplega fimmþúsund steinum og hann var umkringdur sínu besta fólki. Sunna Ben

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég vil bara fá að nota tækifærið og þakka kærlega fyrir mig, fyrir allar fallegu kveðjurnar, símtölin, fyrir komuna öll sömul og enn og aftur sérstaklega þið sem lögðuð í hellings kostnað og fyrirhöfn til að mæta. Fyrir gjafirnar að sjálfsögðu og svo öllum þeim fjölmörgu sem lögðu á sig hellings vinnu til að gera kvöldið svona fullkomið og ógleymanlegt. Ég elska ykkur öll. 

Svo að lokum mæli ég eindregið með því að halda upp á stórafmælin sín og búa til dýrmætar minningar þar sem maður veit nú aldrei hvenær eru síðustu forvöð að lifa lífinu lifandi.

Hér má sjá fleiri myndir frá þessu ógleymanlega fimmtugsafmæli:

Fólk í miklu fjöri!Sunna Ben
Draupnir fékk rauða rós frá góðum vinum.Sunna Ben
Þemað var svart, hvítt og bling.Sunna Ben
Vinir Draupnis gáfu skemmtilegar gjafir.Sunna Ben
Þórunn Antonía glimmerbomba tók nokkra smelli.Sunna Ben
Birna Björns og Elín Reynis ásamt afmælisbarninu.Sunna Ben
Ásdís Rósa, Draupnir og Lilja Huld.Sunna Ben
Glæsileg í hvítum fatnaði.Sunna Ben
Flugvélabindið átti vel við!Sunna Ben
Hjónin Hallgrímur Jón Hallgrímsson og Katrín Halldóra Sigurðardóttir voru í banastuði og Katrín, sem er bæði söng-og leikkona, tók vel valin lög.Sunna Ben
Glæsilegir gestir.Sunna Ben
Draupnir átti drauma afmælisdag með besta fólkinu sínu.Sunna Ben
Þemað var svart, hvítt og bling og mátti sjá að gestir klæddu sig upp í því.Sunna Ben
Jafet Máni og Rúnar Gíslason fögnuðu afmælisbarninu.Sunna Ben
Flottir vinir.Sunna Ben
Glæsileg þrjú.Sunna Ben
Skál!Sunna Ben
Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir og Draupnir flott.Sunna Ben
Glamúr og gleði!Sunna Ben
Þvílíka stuðið!Sunna Ben
Hera Björk tók lagið!Sunna Ben
Um þrjúhundruð vinir og fjölskyldumeðlimir fögnuðu tímamótunum með Draupni.Sunna Ben
Veislan var haldin í Fantasíu-sal Vinnustofu Kjarval.Sunna Ben
Gestir brostu út að eyrum allt kvöldið.Sunna Ben
Skálað, hlegið, sungið og dansað.Sunna Ben
Kvöldið var algjör draumur.Sunna Ben
Lóa vinkona Draupnis sá um skemmtilegu skreytingarnar.Sunna Ben
#björtustu #fram #fór #mínum #ýktustu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262903652d/-for-fram-ur-minum-yktustu-bjortustu-vonum-

📰 Aðrar fréttir

Nýfætt barn fannst látið á kamri á teknóhátíð
📅 30.06.2026 👁️ 0
Nýfætt barn fannst látið á kamri á teknóhátíð
Nýfætt barn fannst látið á kamri á tónlistarhátíð í Michigan í Bandaríkjunum. Rannsókn á málinu er hafið og beðið er eftir niðurstöðum krufningar.Tíma...
Guðmundur Franklín með samsæriskenningu um rasísku ummælin gegn Pawel Bartoszek – „Plönuð og pöntuð“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Guðmundur Franklín með samsæriskenningu um rasísku ummælin gegn Pawel Bartoszek – „Plönuð og pöntuð“
Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, segir að ummæli sem tekin hafa verið saman á netinu um Pawel Bartoszek gætu hafa verið „p...
Sjálfvirkar neyðarhringingar til Neyðarlínunnar hafa þurrkast út
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sjálfvirkar neyðarhringingar til Neyðarlínunnar hafa þurrkast út
Eftir að Ísland slökkti alveg á 2G- og 3G-kerfinu hefur eCall, kerfi sem hringir sjálfvirk neyðarsímtöl úr bílum, nánast þurkkast út. Í maí voru þau 1...
Starf­semi Hvals mögu­lega í upp­nám: Hefur ekki svarað eftir­litinu frá því í maí - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Starf­semi Hvals mögu­lega í upp­nám: Hefur ekki svarað eftir­litinu frá því í maí - Vísir
Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri eftirlitsins, segir í samtali við fréttastofu að svo virðist sem mengunin verði til við mjölvinnslu þar sem hluti...
Kostnaður við að geta ekki átt barn í heimabyggð hlaupi á hundruðum þúsunda
📅 30.06.2026 👁️ 0
Kostnaður við að geta ekki átt barn í heimabyggð hlaupi á hundruðum þúsunda
Par á Stöðvarfirði sér fyrir sér að kostnaður þeirra vegna lokunar einu fæðingardeildarinnar á Austurlandi í sumar geti hlaupið á hundruðum þúsunda. Þ...
Segir verk Þór­bergs enn ó­trú­lega lifandi - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Segir verk Þór­bergs enn ó­trú­lega lifandi - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar var farið að Hala í Suðursveit. Það vakti nokkra umræðu síðastliðið haust þegar fréttir birtust af því að Halldór Laxness væri mi...
Major telur Breta eiga afturkvæmt í Evrópusambandið: „Þetta hefur skaðað þjóðina“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Major telur Breta eiga afturkvæmt í Evrópusambandið: „Þetta hefur skaðað þjóðina“
John Major, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins á árunum 1990 til 1997, segir að Bretar þurfi að fá aðgang að innri markaði Evrópu ...
Logi fór á skeljarnar við Como-vatn - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Logi fór á skeljarnar við Como-vatn - Vísir
Parið greinir frá trúlofuninni með mynd í hringrás (e. story) á Instagram þar sem Logi sést á öðru hnénu með hring í hendi. Þau virðast hafa fagnað tr...
Labour women tell Burnham half of next government should be female
📅 30.06.2026 👁️ 1
Labour women tell Burnham half of next government should be female
Female MPs urge Burnham to ensure Labour lead by example on equality should he become prime minister.
Óttast slys og lokar fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi: „Ágangurinn stjórnlaus“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Óttast slys og lokar fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi: „Ágangurinn stjórnlaus“
Landeigandi í Skagafirði hefur áhyggjur af öryggi ferðafólks og náttúruspjöllum á landareign sinni. Hann segist tilneyddur til að loka fyrir aðgang.„Þ...
Row over plan to demolish Nazi bunker under Berlin
📅 30.06.2026 👁️ 0
Row over plan to demolish Nazi bunker under Berlin
City officials want to build flats on the city centre site but others say it should be preserved as part of Germany's history.
Langreyður háði „óvanalega langt“ dauðastríð
📅 30.06.2026 👁️ 1
Langreyður háði „óvanalega langt“ dauðastríð
Langreyður sem Hvalur 8 veiddi 22. júní síðastliðinn var skotin með fjórum sprengiskutlum, samkvæmt eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar. Þrjátíu og ein ...
„Hagið ykkur eins og full­orðið fólk“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Hagið ykkur eins og full­orðið fólk“ - Vísir
Tíundi hvalur vertíðarinnar var dreginn að landi fyrr í morgun á hvalveiðistöðinni í Hvalfirði. Á meðan hvalurinn var dreginn var þjóðsöngur Íslands s...
Rússar gleðjast yfir óvissu en Keflavík enn mikilvæg
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rússar gleðjast yfir óvissu en Keflavík enn mikilvæg
Eru Bandaríkin að kalla herlið sitt frá Evrópu og blasa endalok NATO við? Þeirrar spurningar hefur ítrekað verið spurt síðustu misseri í ljósi yfirlýs...
Patient tested for suspected Ebola virus at Glasgow hospital
📅 30.06.2026 👁️ 1
Patient tested for suspected Ebola virus at Glasgow hospital
It is understood a patient was admitted to the Queen Elizabeth University Hospital during the early hours of Tuesday.
„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ - Vísir
Í dag var greint frá tveimur stórum málum þar sem lögregla lagði hald á fíkniefni í tuga kílóa tali; annars vegar var 106 kílóum af kókaíni smyglað me...
Leikkonan opinberar hvernig bera á fram raunverulegt eftirnafn hennar sem mörgum þykir neyðarlegt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Leikkonan opinberar hvernig bera á fram raunverulegt eftirnafn hennar sem mörgum þykir neyðarlegt
Leikkonan Olivia Wilde var lögð í einelti í æsku fyrir sitt raunverulega eftirnafn – Cockburn – og ákvað því að taka upp eftirnafnið Wilde þegar hún g...
Milljón sóttu um dvalarleyfi á Spáni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Milljón sóttu um dvalarleyfi á Spáni
Um ein milljón hefur sótt um dvalarleyfi á Spáni eftir að stjórnvöld þar kynntu áform um að veita óskráðum innflytjendum dvalarleyfi í landinu.Umsókna...
Milljón sótti um dvalarleyfi á Spáni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Milljón sótti um dvalarleyfi á Spáni
Um ein milljón hefur sótt um dvalarleyfi á Spáni eftir að stjórnvöld þar kynntu áform um að veita óskráðum innflytjendum dvalarleyfi í landinu.Umsókna...
Stærsta kókaínmál Ís­lands­sögunnar og ráð­herra sakar starfs­menn Hvals um fífla­skap - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Stærsta kókaínmál Ís­lands­sögunnar og ráð­herra sakar starfs­menn Hvals um fífla­skap - Vísir
Þetta er annað stóra fíkniefnamálið á skömmum tíma en fyrr í mánuðinum var greint frá umfangsmiklu máli tengdu Norrænu. Lögreglan segir eftirspurnina ...
Lokaeinkunnirnar vís­bending um ósamræmda ein­kunna­gjöf - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lokaeinkunnirnar vís­bending um ósamræmda ein­kunna­gjöf - Vísir
Í svari barna- og menntamálaráðuneytisins við fyrirspurn Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, um dreifingu einkunna kemur fram að hlutfall ne...
Komust á snoðir um kókaínsmyglið fyrir nokkrum vikum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Komust á snoðir um kókaínsmyglið fyrir nokkrum vikum
Lögregla vinnur með Europol og lögreglu erlendis að rannsókn á stærðarinnar kókaínsmygli hingað til lands. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþj...
Halldór Haraldsson píanóleikari er látinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Halldór Haraldsson píanóleikari er látinn
Halldór Haraldsson píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík lést í gær, 89 ára gamall. Halldór á farsælan feril að baki og...
Enn stöðugt landris undir Svartsengi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Enn stöðugt landris undir Svartsengi
Landris heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða og líklegasta sviðsmyndin er enn áframhaldandi kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og ...
Sóttu slasaðan mann í Drangey
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sóttu slasaðan mann í Drangey
Björgunarsveit á Sauðárkróki var kölluð út síðdegis í dag og sótti slasaða manneskju í Drangey í Skagafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysav...
Komu slösuðum til bjargar í Drang­ey - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Komu slösuðum til bjargar í Drang­ey - Vísir
Í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu segir að uppgangan í Drangey sé brött og erfið og því ekki hlaupið að því að flytja liggjandi sjúkling þá leið. Bj...
US Supreme Court upholds birthright citizenship in blow to Trump
📅 30.06.2026 👁️ 1
US Supreme Court upholds birthright citizenship in blow to Trump
The ruling is a major setback for Donald Trump's immigration agenda, and has been welcomed by civil rights groups.
Hundi bjargað á lífi úr húsarústum í Venesúela
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hundi bjargað á lífi úr húsarústum í Venesúela
„Eftir fimm klukkustundir tókst okkur að bjarga þessum litla hundi sem svarar nafninu Giselle,“ skrifar Nayib Bukele, forseti El Salvador, við myndske...
Hall­dór Haralds­son er látinn - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hall­dór Haralds­son er látinn - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í andlátstilkynningu frá aðstandendum Halldórs en hann fæddist í Reykjavík þann 18. febrúar árið 1937. Þar er einni...
Flóknari aðdragandi en fyrir þingkosningar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Flóknari aðdragandi en fyrir þingkosningar
Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram að mjótt er á munum milli þeirra sem hallast að því að segj...
Fjarheilbrigðisþjónusta verði óháð búsetu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjarheilbrigðisþjónusta verði óháð búsetu
Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta stefnu í fjarheilbrigðisþjónustu hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum. Hópurinn leggur áhe...
Cruise passengers 'stranded' after air con failure to be flown home
📅 30.06.2026 👁️ 1
Cruise passengers 'stranded' after air con failure to be flown home
Tui has apologised and told passengers it has arranged flights home for tomorrow and a full refund.
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni - Vísir
Þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar eru í haldi lögreglunnar vegna innflutnings á rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum sem voru flutt sjóle...
Langreyður háði dauðastríð í rúman hálftíma
📅 30.06.2026 👁️ 1
Langreyður háði dauðastríð í rúman hálftíma
Langreyður háði dauðastríð í rúman hálftíma Nátt­úru- og dýra­vernd­ar­sam­tök segja dauða­stríð lang­reyð­ar ekki „ein­angr­að eða til­fallandi frá­v...
Defence Investment Plan: Will the UK's plan for defence help it hit Nato's spending target?
📅 30.06.2026 👁️ 1
Defence Investment Plan: Will the UK's plan for defence help it hit Nato's spending target?
BBC Verify looks at what the big numbers around the Defence Investment Plan mean for spending on the military and hitting the government's pledges.
Leikstjóri dæmdur í 30 mánaða fangelsi fyrir að svíkja Netflix - „Svik verða ekki umborin“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Leikstjóri dæmdur í 30 mánaða fangelsi fyrir að svíkja Netflix - „Svik verða ekki umborin“
Ekki hafa margir heyrt um Netflix-þættina Conquest sem fyrst áttu að heita White horse, enda hafa þeir aldrei verið sýndir þrátt fyrir að streymisveit...
Mælti sér mót við 14 ára stúlku
📅 30.06.2026 👁️ 1
Mælti sér mót við 14 ára stúlku
Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir kynferðisbrot gegn barni með því að hafa á tímabilinu febrúar til maí 2023 ítrekað sent kynferðisleg skilaboð ...
Starfsmaður Hvals hf hristi getnaðarlim langreyðar framan í myndavélina
📅 30.06.2026 👁️ 1
Starfsmaður Hvals hf hristi getnaðarlim langreyðar framan í myndavélina
Starfsmaður Hvals hf lék sér að getnaðarlim langreyðar sem dregin var á land í Hvalfirði í dag. Starfsmennirnir hrópuðu „Áfram Ísland“ og þjóðsöngurin...
Klettaskóli flytur í haust: „Allir mjög peppaðir“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Klettaskóli flytur í haust: „Allir mjög peppaðir“ - Vísir
Arnheiður Helgadóttir, skólastjóri Klettaskóla, segir starfsfólk, nemendur og foreldra hafa tekið vel í flutningana enda verði þeir til þess að aðstæð...
Tíma­mót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Tíma­mót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ - Vísir
Klettaskóli er grunnskóli fyrir börn með miðlungs-, alvarlega- og djúpa þroskahömlun með eða án viðbótarfatlana. Tilkynnt var um flutning á hluta star...
Gáfu óskráðum innflytjendum frest til að yfirgefa landið
📅 30.06.2026 👁️ 1
Gáfu óskráðum innflytjendum frest til að yfirgefa landið
Mikil ólga er í Suður-Afríku eftir mótmæli og ofbeldi gegn innflytjendum síðustu vikur. Mótmælahreyfingar gáfu fólki án dvalarleyfis frest þar til í d...
Engar beinar viðræður Bandaríkjanna og Írans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Engar beinar viðræður Bandaríkjanna og Írans
Það verða ekki beinar samningaviðræður milli Bandaríkjanna og Írans í Doha í Katar, segir talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins. Talsmaður stjórnva...
Nær öll tónlist komin inn í gervigreindarmódelin
📅 30.06.2026 👁️ 1
Nær öll tónlist komin inn í gervigreindarmódelin
Félag íslenskra hljómlistarmanna, systursamtök þess á Norðurlöndunum og fleiri félög lýsa yfir þungum áhyggjum vegna vaxandi gervigreindarsamstarfs pl...
Ekki hægt að vísa leiðtoga eins ógeðslegasta nauðgunargengis Bretlands úr landi eftir fangavist vegna glufu í lögum – Verður látinn laus á næstunni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ekki hægt að vísa leiðtoga eins ógeðslegasta nauðgunargengis Bretlands úr landi eftir fangavist vegna glufu í lögum – Verður látinn laus á næstunni
Shabir Ahmed, einn af leiðtogum Rochdale nauðgunargengisins í Bretlandi, verður látinn laus úr fangelsi á fimmtudag en verður ekki vísað úr landi til ...
Andy Burnham plans to work some days in Manchester as PM
📅 30.06.2026 👁️ 1
Andy Burnham plans to work some days in Manchester as PM
The ex-Greater Manchester mayor plans a new No 10 unit in the city if he becomes Labour's next leader.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands rannsakar mögulega mengun vegna hvalveiða
📅 30.06.2026 👁️ 1
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands rannsakar mögulega mengun vegna hvalveiða
Grunur er um að mengun stafi frá hvalstöðinni í Hvalfirði. Heilbrigðiseftirliti Vesturlands hafa borist ábendingar um ljósa yfirborðsslikju í sjónum n...
Endaði einn í Fær­eyjum í sögu­legri steggjun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Endaði einn í Fær­eyjum í sögu­legri steggjun - Vísir
Það sem virtist ætla að vera fjörugur strákadagur breyttist í 56 klukkutíma steggjun með óvæntu ferðalagi til Færeyja þar sem Arnór þurfti að vinna sé...
Einar Bárðarson ómyrkur í máli – Gjaldþrotahrinan rétt að byrja
📅 30.06.2026 👁️ 1
Einar Bárðarson ómyrkur í máli – Gjaldþrotahrinan rétt að byrja
„Gjaldþrota hrinan sem gengið hefur yfir greinina síðasta ár er líkast til rétt að byrja ef ekkert verður að gert í umhverfinu okkar,“ segir Einar Bár...
Stærsta kókaínmál sögunnar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Stærsta kókaínmál sögunnar
Brasilískt súrálsskip sigldi með yfir 100 kíló af kókaíni til landsins þann 22. júní síðastliðinn og lagðist að höfn í Straumsvík í Hafnarfirði. RÚV g...
Davíð er orðlaus yfir vægri refsingu: „Svona drengir skeina sér á skilorðsbundnum dómum“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Davíð er orðlaus yfir vægri refsingu: „Svona drengir skeina sér á skilorðsbundnum dómum“
„Svona drengir skeina sér á skilorðsbundnum dómum. Þarna átti ekki að hika, heldur grípa tækifærið og nýta 57. gr. almennra hegningarlaga til að skily...