Um ein milljón hefur sótt um dvalarleyfi á Spáni eftir að stjórnvöld þar kynntu áform um að veita óskráðum innflytjendum dvalarleyfi í landinu.
Umsóknarfresturinn rennur út í dag en spænsk stjórnvöld kynntu áformin í apríl. Þau vöktu talsverða athygli fyrir að vera frábrugðin því sem flest önnur Evrópuríki hafa gert, sem er að herða reglur og lög um innflytjendur.
Átakið á Spáni nær til allra sem komu til landsins fyrir síðustu áramót og geta sýnt fram á hreint sakavottorð. Öll þau geta sótt um dvalarleyfi til eins árs og svo á að vera hægt að sækja um framlengingu.
Ekki er ljóst hversu mörg fá dvalarleyfi, spænsk stjórnvöld töldu í upphafi að aðgerðin gagnaðist um 500 þúsund.
Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar segir að fjöldi umsókna sýni hversu brýn þörfin sé. Stjórnvöld ætla að gefa sér þrjá mánuði til að fara yfir umsóknirnar.
Mörg þeirra sem sóttu um eru þegar í vinnu en fá greitt í reiðufé. Helstu rök stjórnvalda eru að eftir að fólk fái dvalarleyfi greiði það skatta.