Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir kynferðisbrot gegn barni með því að hafa á tímabilinu febrúar til maí 2023 ítrekað sent kynferðisleg skilaboð til 14 ára stúlku í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat. Hann er einnig sakaður um að hafa mælt sér mót við stúlkuna í því skyni að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök.Krafist er þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er krafist upptöku á iPhone síma hans. Fyrir hönd stúlkunnar er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð 1,5 milljónir króna.
Mælti sér mót við 14 ára stúlku