Brynjar Karl Sigurðsson, stofnandi og þjálfari Aþenu, segir að framtíð félagsins ráðist á næstu vikum og varar við því að starfsemi þess í Efra Breiðholti verði lögð niður ef nýr meirihluti í Reykjavík grípi ekki til aðgerða.
Þetta kemur fram í færslu sem Brynjar birti á Facebook þar sem hann segir félagið standa á krossgötum eftir stjórnarskipti í borginni.
Segir framtíð Aþenu ráðast á næstu vikum
Í færslunni segir Brynjar að hann hafi ítrekað verið spurður um stöðu Aþenu frá því nýr meirihluti tók við stjórn Reykjavíkurborgar. Hann rifjar jafnframt upp að hann hafi gagnrýnt fyrri meirihluta harðlega vegna meðferðar borgarinnar á félaginu.
„Ef nýi meirihlutinn ætlar ekki einu sinni að hreinsa hindranirnar úr vegi félagsins, þá er þessi barátta fullreynd og við berjumst ekki lengur við þetta kerfi, og starf Aþenu í Efra Breiðholti verður lagt niður,“ skrifar Brynjar.
Hann segir að fulltrúar Aþenu eigi fund með fulltrúum Sjálfstæðisflokksins á morgun þar sem farið verði yfir stöðu félagsins og mögulegar leiðir til að tryggja framtíð þess.
Setur fram lágmarkskröfur til borgarinnar
Brynjar setur jafnframt fram það sem hann kallar lágmarkskröfur Aþenu til nýs meirihluta. Þar nefnir hann meðal annars rekstrarsamning um íþróttahúsið í Austurbergi, aukna kennslu- og fundaraðstöðu og stöðugri umgjörð um starfsemi félagsins.
Að hans sögn hefur skortur á rekstrarsamningi og óvissa í samskiptum við borgina gert félaginu það erfitt að byggja upp langtímastarf. Hann segir einnig að fyrri meirihluti hafi sett ítrekaðar hindranir í veg fyrir frekari uppbyggingu.
Þá leggur Brynjar til að borgin fjárfesti í stuðningsfulltrúa fyrir félagið, stofni sérstakan sjóð til að greiða æfingagjöld og búnað fyrir börn sem þurfa á því að halda og styðji við stofnun drengjaflokka hjá Aþenu.
Segir verkefnið spara samfélaginu háar fjárhæðir
Í færslunni leggur Brynjar ríka áherslu á að Aþena sé ekki eingöngu íþróttafélag heldur einnig öflugt forvarnarverkefni. Hann segir félagið sinna íslenskukennslu, aðstoð við heimanám og karakteruppbyggingu samhliða íþróttastarfinu.
Að hans mati hefur verkefnið þegar sýnt fram á samfélagslegt gildi sitt og aukinn stuðningur borgarinnar myndi skila verulegum sparnaði til lengri tíma með því að styrkja börn og ungmenni sem eru í viðkvæmri félagslegri stöðu.
Hann segir félagsráðgjafa sem þekkja starfsemi Aþenu hafa bent á að samfélagslegur sparnaður af verkefninu geti numið hundruðum milljóna króna á ári.
Reykjavíkurborg hefur ekki svarað fyrirspurn
Nútíminn leitaði viðbragða frá Reykjavíkurborg vegna ummæla Brynjars. Þegar fréttin var birt höfðu engin svör borist. Berist þau síðar verður fréttin uppfærð.