Nú hafa alls tíu langreyðar verið drepnar og dregnar á land en skipið Hvalur 9 sneri til lands í gær með tvær langreyðar og Hvalur 8 nú í dag, þriðjudaginn 30. júní, með eina.
Þá hefur Hvalur 9 enn ekki haldið aftur til veiða vegna veðurs á miðunum en Hvalur 8 hefur að öllum líkindum siglt í höfn með einn hval en ekki tvo eins og vaninn er, líklega af sömu ástæðu.
Á myndbandinu hér að neðan má sjá þegar tíundi hvalurinn er dreginn á land en í hátalarakerfi á höfninni má heyra þjóðsönginn spilaðan, því næst er lagið „Ég er kominn heim“ spilað í hátalarakerfinu.
Einn mannanna á höfninni tók sig loks til og lyfti upp getnaðarlim dýrsins og otaði í átt að myndavél tökumanns Vísis sem stóð álengdar.
Fyrr í dag var greint frá því að Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, fylgi enn skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir innan íslenskrar lögsögu. Samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals og er leiðangurinn kenndur við annan leiðangur árið 1986 þar sem tveimur skipum Hvals var sökkt.