Það verða ekki beinar samningaviðræður milli Bandaríkjanna og Írans í Doha í Katar, segir talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins. Talsmaður stjórnvalda í Katar tekur undir þetta og segir enga fundi eða viðræður milli ríkjanna fyrirhugaðar sem stendur.
Þetta stangast á við færslu Donalds Trump Bandaríkjaforseta frá því í gær þar sem fram kom að Íranar hefðu beðið um fund og hann yrði í dag. Samt sem áður eru aðalsamningamenn Trumps, Steve Witkoff og Jared Kushner, komnir til Doha og írönsk stjórnvöld ætla að senda þangað fulltrúa í vikunni.