Grunur er um að mengun stafi frá hvalstöðinni í Hvalfirði. Heilbrigðiseftirliti Vesturlands hafa borist ábendingar um ljósa yfirborðsslikju í sjónum nærri stöðinni sem stafar af fitubrák sem hefur verið fargað við verkun hvala.
Þetta staðfestir Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir heilbrigðisfulltrúi.
Þorbjörg segir stofnunina vinna að því að skoða málið vel og vandlega og sannreyna hvort ábendingarnar séu á rökum reistar. Niðurstaðna sé að vænta á næstu dögum.