Ekki hafa margir heyrt um Netflix-þættina Conquest sem fyrst áttu að heita White horse, enda hafa þeir aldrei verið sýndir þrátt fyrir að streymisveitan Netflix hafi eytt milljörðum í verkefnið. Varð streymisveitunni á þau mistök að gefa leikstjóranum, Carl Erik Rinsch, lausan tauminn með fjárveitingu verkefnisins en leikstjórinn hefur nú verið dæmdur í 30 mánaða fangelsi fyrir fjármálamisferli.
Leikstjóri dæmdur í 30 mánaða fangelsi fyrir að svíkja Netflix - „Svik verða ekki umborin“