Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn á Norðurlandi á dögunum með 56 kíló af amfetamíni í bíl sínum, auk annarra fíkniefna. Lögreglan hefur aldrei lagt hald á jafnmikið magn amfetamíns í einni sendingu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að maðurinn hafi komið til landsins með Norrænu.
Fíkniefnin voru falin í húsbíl mannsins. Auk amfetamínsins fundust í bílnum 8 kíló af kókaíni, 3 kíló af ketamíni, 1 kíló af metamfetamíni og 1 kíló af svokölluðu „bleiku kókaíni“, blöndu af ketamíni og MDMA.
Í tilkynningu frá lögreglunni, þar sem einnig er greint frá stærsta kókaínsmygli sögunnar, segir að rannsókn málanna miði ágætlega og að lögreglan hafi notið aðstoðar Europol.
Fréttin hefur verið uppfærð.