Langreyður háði dauðastríð í rúman hálftíma
Náttúru- og dýraverndarsamtök segja dauðastríð langreyðar ekki „einangrað eða tilfallandi frávik“. Ný eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar sýnir að langreyður var skotin fjórum sinnum og var áætlaður tími til dauða rúmur hálftími.
„Þegar svo alvarleg brot á dýravelferð eiga sér stað ber að stöðva veiðarnar tafarlaust og rannsaka málin af fullri alvöru,“ segir í yfirlýsingu sem hópur náttúruverndar- og dýraverndarsamtaka sendi frá sér í dag í kjölfar nýrrar eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar.
Skýrslan sýnir að 22. júní skaut Hvalur 8 sömu langreyðina fjórum sinnum. Samkvæmt skýrslunni kafaði dýrið eftir fyrsta skotið en áætlað er að það hafi tekið 31 mínútu fyrir dýrið að deyja. Dýrið var fyrst skotið kl. 17:06, aftur kl. 17:19, í þriðja sinn kl. 17:26 og að lokum kl. 17:37.
„Þetta eru ekki einangruð eða tilfallandi „frávik”. Þegar Hvalur hf. stundaði síðast hvalveiðar árið 2023 voru bátar félagsins ítrekað stöðvaðir vegna alvarlegra atvika þar sem skot geiguðu og hvalir háðu löng og kvalarfull dauðastríð. Það er því ljóst að um kerfisbundinn vanda er að ræða sem ekki hefur verið leystur,“ segir í yfirlýsingunni en samtökin Hvalavinir – vernd hafsins, Hard to …