Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta stefnu í fjarheilbrigðisþjónustu hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum. Hópurinn leggur áherslu á að fjármögnun sé ein af grunnforsendum þess að fjarheilbrigðisþjónusta verði raunhæfur og samræmdur hluti heilbrigðiskerfisins.
Lagt er til að sérstaklega sé skilgreint fjármagn til stofnunar, innleiðingar, þróunar og reksturs fjarheilbrigðisþjónustu. Hún þurfi einnig að ná til innviða líkt og öruggra tengileiða og netsambands um allt land þannig að þjónustan verði aðgengileg óháð búsetu.
Drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um fjarheilbrigðisþjónustu eru til umsagnar í samráðsgátt.