Hróarskelduhátíðin, Roskilde festival, hófst um helgina í Hróarskeldu í Danmörku en hún er að jafnaði stærsta tónlistarhátíðin sem er haldin á Norðurlöndum. Samkvæmt forsvarsmönnum hátíðarinnar telst frábær árangur að fá Svansvottun fyrir svo stóran viðburð.
Svansvottun mikilvægt skref
Hróarskelduhátíðin er haldin ár hvert og þangað mæta um 130 þúsund manns til að taka þátt í átta daga hátíð með tónlist og annarri skemmtun. Svansvottunin þyki þannig mikilvægt skref í því að gera umhverfis- og loftslagsstarf hátíðarinnar kerfisbundnara og bindandi, bæði í innra skipulagi og í samstarfi við aðra. Þannig veiti Svansmerkið strangan ramma til að þróa hátíðina á umhverfisvænni hátt.
Ein stærsta og elsta tónlistarhátíð í Evrópu
Svansvottun þýðir að hátíðin uppfyllir kröfur um orkunotkun, líffræðilegan fjölbreytileika, mat og drykk, auðlindanýtingu, úrgangsstjórnun, hreinsiefni, markaðssetningu og samskipti. Sérfræðingur hjá Svaninum í Danmörku fagnar þessum áfanga og að svo þekktur og rótgróinn viðburður hafi hlotið Svansvottun. Hróarskelduhátíðin hefur verið haldin frá árinu 1971 og er ein stærsta og elsta tónlistarhátíð í Evrópu.