Ungmenni sem fengin voru til samráðs um reglugerð um símafrí í skólum saka Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um sýndarsamráð. Hafði Inga sagt um vinnustofuna þar sem samráðið fór fram: Ekkert um ykkur, án ykkar. Tvö ungmenni sem sátu vinnustofuna segja þó að ekkert af tillögum og sjónarmiðum ungmennanna hafi ratað í reglugerðina. Þetta kom fram í Morgunútvarpi Rásar 2 þar sem ungmennin Indriði Nökkvi Þóreyjarson og Karitas Lea Kristjánsdóttir úr Ungheill stigu fram og mótmæltu reglugerðinni.
Ungmenni saka Ingu Sæland um sýndarsamráð um símabann - „Við erum svo vonsvikin“