Trump skrifaði undir tilskipunina á fyrsta degi seinna kjörtímabili síns sem forseti í fyrra. Dómstólar höfnuðu henni þó fljótt og tók hún því hvergi gildi.
Þó að íhaldssami meirihlutinn í hæstaréttinum hafi verið tilbúnir að útvíkka verulega völd forsetans í tíð Trump þótti þeim of langt gengið í þessu máli.
Á endanum studdist rétturinn við langvarandi túlkun á fjórtánda viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna sem skilgreinir alla þá sem fæðast í Bandaríkjunum sem bandaríska borgara.
AP-fréttastofan segir að allt að 250.000 börn sem fæðast í Bandaríkjunum á hverju ári hefðu orðið bandarísks ríkisborgararétts ef rétturinn hefði fallist á rök Trump-stjórnarinnar.