106 kílóum af kókaíni var á dögunum smyglað til landsins með skipi sem kom frá Brasilíu og lagði að höfn í Straumsvík í Hafnarfirði. Aldrei hefur svo mikið kókaín fundist í einni sendingu.
Umfangsmiklar lögregluaðgerðir hafa staðið yfir á undanförnum dögum þar sem gerðar hafa verið nokkrar húsleitir. Að minnsta kosti níu hafa verið handteknir og færðir í gæsluvarðhald. Þar af eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti tveir Íslendingar. Einhverjir hinna grunuðu hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald.
Verjendur hinna grunuðu hafa ekki fengið upplýsingar um hve umfangsmikil málin eru.
Kafari kom til landsins
Efnin komu til landsins með súrálsskipinu Koznitza frá Brasilíu mánudaginn 22. júní. Skipið siglir undir maltneskum fána og fór aftur af landi brott á sunnudaginn. Það er nú suður af Færeyjum.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur íslenska lögreglan aldrei séð smygl af þessu tagi áður. Efnunum var óvenjulega komið fyrir og er talið að maður hafi komið gagngert til landsins til að kafa eftir efnunum.
Höfnin í Straumsvík er eingöngu notuð af skipum sem flytja farm til og frá álveri Rio Tinto. Á vef Hafnarfjarðarhafna eru vefmyndavélar af öllum hafnarsvæðum nema höfnum í Straumsvík.
Efnin eru milljarða virði
Efnið er talið mjög hreint og samkvæmt heimildum fréttastofu er gróflega áætlað að óblandað séu efnin tveggja milljarða króna virði. Með því að blanda efnin gæti sendingin verið um fjögurra milljarða virði.
Rannsakendur í málinu hafa í dag sent öðrum lögreglumönnum ljósmyndir af mönnum sem taldir eru tengjast málinu og lögregla vill vita meira um.
Málið er það stærsta sem upp hefur komið á Íslandi. Sumarið 2022 var reynt að smygla til landsins 99,9 kílóum af kókaíni í timbursendingu í skipi frá Brasilíu. Sú sending var stöðvuð í Hollandi og efnunum skipt út fyrir gerviefni áður en skipinu var siglt þaðan til Íslands. Næststærsta málið kom svo upp fyrr á þessu ári þegar 43 kíló af kókaíni fundust falin í húsbíl í Norrænu.