Kókaínið var flutt með flutningaskipti til Straumsvíkur til Suður-Ameríku. Efnið var falið í sjókistu undir skipinu, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Alls lagði lögregla hald á 106 kíló af kókaíni.
Í framhaldinu voru framkvæmdar handtökur á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Níu sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar, þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar.
Flestir mannanna eru sagði á fimmtugsaldri, en sá yngsti í hópnum er um þrítugt og sá elsti á sextugsaldri. Þeir voru handteknir í þessari viku og þeirri síðustu. Aðgerðirnar voru unnar í nánu samstarfi við sérsveit ríkislögreglustjóra.
Ríkisútvarpið segir að efninu hafi verið smyglað með skipinu Koznitza frá Brasilíu sem siglir undir maltneskum fána. Kafari sem sé talinn viðriðinn málið hafi náð í efnið. Höfnin í Straumsvík sé aðeins notuð af skipum sem flytji farm og til álvers Rio Tinto.
Lögreglan greindi einnig frá því í dag að hún hefði lagt hald á metmagn af amfetamíni sem falið var í húsbíl sem kom með Norrænu. Erlendur ríkisborgari á sextugsaldri var handtekinn vegna þess máls.