Íslenska ríkið og Landhelgisgæslan máttu banna lúxussnekkju að leggjast við höfn á Akureyri í vor. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, þar sem ríkið var sýknað af kröfum félagsins La Datcha Marine X.
Lögmaður félagsins sagði ekki ákveðið hvort dómnum yrði áfrýjað, hann ætti eftir að ráðfæra sig við umbjóðanda sinn.
Skipverjar á La Datcha óskuðu eftir því að koma til hafnar á Akureyri 21. mars en fengu þá neitun á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi. Þá ákvörðun vildi eigandi snekkjunnar fá fellda úr gildi.
Skip undir rússneskum fána megi ekki koma til EES-hafna
Skipið var þá undir fána Panama, á leið frá Istanbúl með 26 manns um borð. La Datcha sigldi undir rússneskum fána frá apríl 2021 til september 2022. Skipið lónaði í Eyjafirði um það bil viku, en var loks leyft að sækja eldsneyti og vistir undir eftirliti lögreglu.
Landhelgisgæslan sagði ákvörðunina byggja á þeim hluta þvingunaraðgerðanna sem kveður á um að skip sem siglir undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 er óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES-svæðinu.
Félagið er skráð á Seychelles-eyjum en snekkjan er í eigu rússneska auðmannsins Oleg Tinkov, sem í dag hefur Kýpverskt ríkisfang. Tinkov hefur verið gagnrýninn á innrás Rússlands í Úkraínu og segir stjórnvöld í heimalandinu hafa beitt sig þungum refsingum fyrir afstöðu sína.