Sprenging í íbúðarhúsnæði í Mónakó í gærkvöld er ekki rannsökuð sem hryðjuverk heldur tilraun til manndráps. Þetta sagði saksóknari á blaðamannafundi.
Þrír særðust í sprengingunni, þar af hlutu tveir lífshættulega áverka. Þeirra á meðal, herma heimildir fréttastofu AFP, er úkraínski ólígarkinn Vadym Yermolaiev.