Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu og hefur Watson boðað aðgerðir gegn hvalveiðum Íslendinga. Varðskipið Þór hefur fylgt Bandero eftir undanfarna daga.
„Tveir hvalir til viðbótar dregnir á land. Annar þeirra var kálffull kýr. Tíu hvalir drepnir það sem af er og vertíðin er varla hafin. En Bandero er að koma til Íslands og nýja aðgerðin okkar með @chilli.app er komin í loftið: Við beinum spjótum okkar að olíufélaginu sem heldur þessum drápum gangandi. Saman munum við stöðva þetta fyrir fullt og allt.“