Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
Ný rannsókn CSPII 2026 á FGM vekur mikilvægar spurningar vegna aukandi útbreiðslu í vestrænum ríkjum á alvarlegum brotum á mannréttindum stúlkna og kvenna.
Ný rannsókn frá Center for the Study of Political Islam International (CSPII), sem ber heitið CSPII FGM Index 2026, setur fram umfangsmikla greiningu á útbreiðslu umskurðar á kynfærum stúlkna og kvenna (FGM). Samkvæmt rannsókninni byggir hún á gögnum frá 78 löndum og er markmið hennar að gefa sem heildstæðasta mynd af útbreiðslu FGM á heimsvísu.
ATH lýsing á framkvæmd FGM neðst í greininni!!.
Yfir 300 milljónir þolenda á lífi í dag
Samkvæmt FGM Index 2026 hafa á bilinu 297–307 milljónir kvenna og stúlkna SEM ERU Á LÍFI í DAG! orðið fyrir FGM. Það jafngildir um einni af hverjum þrettán konum og stúlkum í heiminum.
CSPII FGM INDEX 2026 inniheldur ítarlega greiningu á tengslum FGM og íslamskrar trúarkenningar. CSPII er sjálfstæð, óhagnaðardrifin rannsóknar- og fræðslustofnun sem rannsakar pólitískan íslam með greiningu á frumheimildum íslams, þar á meðal Kóraninum, hadith og klassískum trúartextum. Stofnunin segist beita gagnagreiningu, samanburði á opinberum tölfræðiupplýsingum og rannsóknaraðferðum sem byggja á frumheimildum.
Niðurstöður skýrslunnar
Niðurstöðu skýrslunnar eru að:
Kóraninn gefi í skyn að FGM sé hluti af því eðli sem Allah skapaði.
Múhameð hafi samþykkt FGM, bæði með beinum og óbeinum hætti.
Því séu múslimskar stúlkur og konur helstu fórnarlömb FGM vegna þess að íslömsk trúarkenning styðji FGM.
Margar stofnanir sem berjast gegn FGM neita því að tengsl séu á milli íslamskrar trúarkenningar og FGM. Samkvæmt höfundum skýrslunnar stofnar það lífi, heilsu og velferð milljóna kvenna og stúlkna í hættu, þar sem engin lausn geti verið árangursrík ef ekki sé tekið tillit til þess sem þeir telja vera raunverulegar orsakir vandans. Von þeirra er að árleg CSPII FGM INDEX, með því að varpa ljósi á alvarleika vandans og tengsl milli íslamskrar trúarkenningar og FGM, stuðli að betri skilningi á eðli og orsökum FGM og þannig hjálpi til við að uppræta þetta alvarlega brot gegn reisn og réttindum barna og þeirra kvenna sem þau verða.
FGM og útbreiðsla í vestrænum ríkjum
Rannsóknin kemst að þeirri niðurstöðu að nær 85% allra þekktra FGM-tilfella séu innan múslimskra samfélaga. Hún heldur því jafnframt fram að sterk fylgni sé milli útbreiðslu FGM og áhrifa íslamskrar trúarkenningar sem er að dreifa úr sér til vestrænna ríkja.
CSPII segir að greining þeirra á Kóraninum, hadith og fyrstu kynslóðum múslima leiði í ljós að FGM hafi stuðning í ákveðnum trúarlegum heimildum og hafi verið stunduð meðal fyrstu fylgjenda Múhameðs. Á grundvelli þeirrar greiningar telur stofnunin að ekki sé hægt að skilja eða uppræta FGM nema taka einnig til skoðunar trúarlegar kenningar sem að hennar mati styðja framkvæmdina.
Í rannsókninni er einnig bent á að FGM hafi borist til ríkja þar sem venjan var áður nær óþekkt vegna innflytjenda frá löndum þar sem FGM er útbreidd. Þar eru nefnd dæmi um áætlaðan fjölda þolenda
577.000 konur og stúlkur sem hafa orðið fyrir FGM í Bandaríkjunum.
161.000 í Kanada.
139.000 í Frakklandi.
137.000 í Bretlandi.
104.000 í Þýskalandi.
Þá bendir skýrslan einnig á að Svíþjóð sé það vestræna ríki sem hafi hæsta hlutfall kvenna og stúlkna sem hafa orðið fyrir FGM, eða um 1,3% af kvenkyns íbúum landsins. Samkvæmt CSPII endurspegla þessar tölur áhrif fólksflutninga frá löndum þar sem FGM er útbreidd venja.
Gögn UNICEF og UNFPA
Samkvæmt gögnum UNICEF og UNFPA er FGM nær alhliða í nokkrum ríkjum. Í
Somalíu hafa um 98% kvenna á aldrinum 15–49 ára orðið fyrir FGM. Í Gíneu er hlutfallið um 95%, í
Djíbútí 93% og í Malí 91%.
Einnig er tíðnin mjög há í Egyptalandi (87%), Súdan (87%), Erítreu (83%) og Síerra Leóne (83%). Þótt landsmeðaltalið í Senegal sé um 25%, er tíðnin yfir 90% í sumum héruðum landsins.
Þessi tafla byggir á opinberum gögnum frá UNICEF og UNFPA, sem eru almennt taldar meðal traustustu heimilda um útbreiðslu FGM á heimsvísu.
Markmið CSPII með útgáfu FGM Index er, samkvæmt stofnuninni sjálfri, að stuðla að opnari umræðu um orsakir FGM og byggja stefnumótun á greiningu þeirra á gögnum og trúarlegum frumheimildum. Stofnunin telur að árangursrík barátta gegn FGM verði að taka mið af þeim þáttum sem hún telur liggja að baki framkvæmdinni.
HVERNIG ER FGM FRAMKVÆMD
FGM (Female Genital Mutilation, umskurður á kynfærum kvenna) er framkvæmd þar sem ytri kynfæri stúlkna eða kvenna eru skorin, fjarlægð eða sködduð án læknisfræðilegrar ástæðu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) flokkar FGM í fjórar megingerðir.
Gerð I (Clitoridectomy)
- Hluti eða allur snípurinn (clitoris) er skorinn burt.
- Stundum er einnig fjarlægð húðin sem hylur snípinn (clitoral hood).
Gerð II (Excision)
- Snípurinn er fjarlægður að hluta eða öllu leyti.
- Einnig eru innri skapabarmar (labia minora) skornir burt að hluta eða öllu leyti.
- Í sumum tilfellum eru einnig hlutar ytri skapabarma (labia majora) fjarlægðir.
Gerð III (Infibulation) – alvarlegasta gerðin
- Snípurinn er oft fjarlægður.
- Innri skapabarmar og stundum ytri skapabarmar eru skornir burt.
- Síðan eru sárbrúnirnar saumaðar eða bundnar saman þannig að leggangaopið verður mjög lítið. Skilið er eftir örlítið gat fyrir þvag og tíðablóð.
- Fyrir kynmök eða fæðingu þarf oft að opna örvefinn með skurði.
Gerð IV
Þessi flokkur nær yfir aðrar skaðlegar aðgerðir á kynfærum, svo sem:
- stungur,
- skurði,
- rispur,
- brennslu,
- gatagerð eða aðrar áverkaaðgerðir.
Hvað er notað?
Í mörgum tilvikum er framkvæmdin ekki gerð af heilbrigðisstarfsfólki heldur af einstaklingum í samfélaginu. Verkfærin geta verið:
- rakvélarblöð,
- hnífar,
- skæri,
- glerbrot,
- beittir steinar,
- eða önnur beitt áhöld.
Í mörgum tilfellum eru sömu verkfærin notuð á fleiri en eina stúlku án dauðhreinsunar, sem eykur hættu á sýkingum.
Hvenær er þetta gert?
Það er mismunandi eftir löndum og samfélögum:
- á fyrstu dögum eftir fæðingu,
- í barnæsku (algengast á aldrinum 5–14 ára),
- eða rétt fyrir hjónaband.
Afleiðingar
FGM getur valdið:
- miklum og bráðum verkjum,
- mikilli blæðingu,
- sýkingum,
- erfiðleikum við þvaglát og tíðablæðingar,
- langvinnum verkjum,
- fylgikvillum við meðgöngu og fæðingu,
- og sálrænum afleiðingum eins og áfallastreitu.
Þetta er ástæðan fyrir því að WHO, UNICEF, Sameinuðu þjóðirnar og fjölmörg ríki líta á FGM sem alvarlegt brot á mannréttindum stúlkna og kvenna.
Samþykkjum við þetta?
Samþykkjum við Íslendingar þessar aðgerðir með því að stinga hausnum í sandinn með opnum landamærum eða er þetta en ein ástæðan til vandvirknis og ábyrgðar.
Fluttningsfólk streymir inn í Evrópu frá ríkjum sem aðhyllast þessar aðgerðir í boði ESB. sem vilja ráða hversu margir koma hingað yfir til Íslands.
Ætla Íslenskir karlmenn að standa vörð utan um sínar konur, mæður og dætur en karlmenn td. Bretlands, Þýskalands og Frakklands hafa misst tökin þar sem fleiri hundruð þúsunda nauðgana ganga yfir kvenmenn þjóðanna af mönnum sem fyrirlíta konur og vilja afskræma þær og eyðileggja.
Segjum NEI fyrir Íslensku þjóðina og höldum okkur fyrir utan óreiðuna í ESB.
Kolbrun K Roberts
Heimildir
CSPII – FGM Index 2026: The Global Prevalence of Female Genital Mutil on-Islamic Ratio.
CSPII FGM Index 2026 (aðalskýrslan)
CSPII fréttatilkynning um skýrsluna
UNICEF – Fréttatilkynning um 230 milljónir þolenda