Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu og hefur Watson sagt að ætlunin sé að stöðva hvalveiðar. Varðskipið Þór hefur fylgt Bandero eftir undanfarna daga vegna þessa.
Í Morgunblaðinu er haft eftir Kristjáni að áhafnir Hvals 9 og Hvals 8 hafi ekki orðið varar við ferðir Bandero. Hann gefi sjálfur lítið fyrir „anty everything-liðið“ líkt og haft er eftir honum í Mogganum.
Áður hefur Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina sagt við fréttastofu að samtökin séu ekki samþykk aðgerðum Watson. Ofbeldisfullar aðgerðir eða aðrar sem stefni lífi fólks í voða sé ekki stutt af Hvalavinum.
Ljóst er að Kristján gefur lítið fyrir þær yfirlýsingar en hann segir við Morgunblaðið að hann leggi ekki neinn trúnað á yfirlýsingar innlendra systursamtaka Paul Watson um að þau séu mótfallin fyrirhuguðum aðgerðum hans á Íslandsmiðum. Hann segir fólk hanga í hlíðinni fyrir ofan hvalstöðina í Hvalfirði og fylgjast með veiðum Hvals. Síðan séu Watson og félagar látnir vita af öllum ferðum Hvals 8 og Hvals 9.