Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglingu í eftirför við Bandero. Fyrir marga borgarbúa hlýtur það að vera söguleg stund, enda hafa þeir um árabil helst séð skipið sem hluta af hafnarmynd Reykjavíkur. Nú fær þjóðin loksins staðfest að Þór getur ekki aðeins legið bundinn við bryggju heldur einnig siglt. Það virðist einfaldlega þurfa alþjóðlegt fjölmiðlaatriði til að fá skipið út úr höfn.
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði