Sálfræðistofan Líf og sál hefur tekið í notkun Ulf, fyrstu almennu fullveldis gervigreindina á Íslandi, og verður þar með fyrsta íslenska fyrirtækið til að innleiða lausnina.
Með þessu fær stofan aðgang að öflugri gervigreind sem keyrir alfarið í eigin búnaði, án þess að nokkur gögn fari úr húsi eða úr landi.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ulf sem er þróað af íslenska fyrirtækinu Stratos og er hannað með áherslu á persónuvernd, öryggi og full yfirráð notenda yfir eigin gögnum.
Strangar kröfur um trúnað
Með innleiðingunni hyggst Líf og sál nýta gervigreind til að auka skilvirkni í innri vinnslu og styðja starfsfólk við fjölbreytt verkefni, á sama tíma og ströngum kröfum um trúnað og vernd viðkvæmra upplýsinga er mætt.
„Við teljum að framtíð gervigreindar í viðkvæmum rekstri felist í lausnum þar sem stofnanir og fyrirtæki halda sjálf stjórn á sínum gögnum. Ulf býður upp á slíka nálgun og því er sérstaklega ánægjulegt að Líf og sál skuli verða fyrsta íslenska fyrirtækið til að taka kerfið í notkun,“ er haft eftir fulltrúi Stratos í tilkynningunni.
