Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgaði um 64 prósent milli ára fyrstu þrjá mánuði ársins. Almennt fjölgaði kynferðisbrotum milli ára. 83 prósent brotaþola eru konur og grunaðir eru í 90 prósent tilfella karlar. 48 prósent brotaþola eru undir 18 ára.
Fjölgun tilkynninga um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot jókst um 64 prósent milli ára, ef miðað er við fyrstu þrjá mánuði ársins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem ríkislögreglustjóri birti í dag. Í fyrra voru 28 brot tilkynnt en í janúar til mars í ár voru þau 46. Borið saman við sama tímabil síðustu þriggja ára er aukningin um 45 prósent.
Áherslur lögreglu gætu skýrt fjölgun
Tilkynningar um vændi nær þrefölduðust og voru 19 mál tekin fyrir hjá lögreglu en 11 í fyrra. „Sveiflur í þessum flokki geta tengst frumkvæðisvinnu lögreglu og aukinni áherslu stjórnvalda á skipulagða brotastarfsemi fremur en raunbreytingu á tíðni brota,“ segir í frétt ríkislögreglustjóra.
Þá fjölgaði tilkynntum kynferðisbrotum um níu prósent milli ára fyrstu mánuði ársins, janúar til mars, miðað við sama tímabil í fyrra og fóru úr 140 tilkynntum brotum í 153 tilkynnt brot. Tilkynntum nauðgunum fækkaði lítillega milli ára fyrir sama tímabil en …