Nýjar verndaraðgerðir Evrópusambandsins vegna stálframleiðslu taka gildi á morgun. Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti þessa ákvörðun hér í Brussel í dag, en aðgerðunum er ætlað að hlífa framleiðendum í álfunni við því sem Evrópusambandið kallar viðvarandi offramleiðslu á stáli í heiminum.
Samkvæmt reglugerðinni verður settur kvóti, 18.3 milljónir tonna, á innflutning á stáli til ríkja Evrópusambandsins, og helmingi þess kvóta verður úthlutað til ríkja sem eru með fríverslunarsamning við ESB. 50 prósent tollur verður settur á stál sem verður umfram þessa kvóta.
Eins og áður hefur komið fram, eru EES-ríkin, Noregur og Ísland undanþegin fyrri aðgerðum af þessu tagi, þótt ríkin tvö standi utan tollabandalagsins. Sama gilti þó ekki um verndaraðgerðir vegna kísilmálms, sem settar voru síðasta vetur og eru enn í gildi.
Í gögnum sem gerð voru opinber í morgun réttlætir ESB þetta með þeirri sérstöku stöðu sem ríkin tvö hafi á innri markaðnum, auk þess sem lítið magn af stáli sé framleitt í þessum ríkjum. Framkvæmdastjórnin tekur þó vara fyrir að framleiðendur í öðrum ríkjum reyni að nýta sér þessa leið inn á innri markaðinn.
Að því fram kemur í útskýringum á þessari ákvörðun, er hún til komin vegna offramleiðslu á heimsvísu, sem í mörgum tilfellum er studd og niðurgreidd. Á sama tíma er vaxandi fjöldi ríkja að hindra aðgang að mörkuðum sínum, og það skapar hættuna á að stálframleiðsla leiti í auknum mæli inn á markaði í Evrópu.