Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, fylgir enn skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir innan íslenskrar lögsögu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er skipið enn í biðstöðu djúpt úti á Faxaflóa á móti Hvalfirði.
Hvalur 9 sneri til lands í gær með tvær langreyðar án þess að Bandero skærist í leikinn og er reiknað með að Hvalur 8 komi til lands um hádegisleytið með eitt dýr.
Samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals og er leiðangurinn kenndur við annan leiðangur árið 1986 þar sem tveimur skipum Hvals var sökkt.
Hótanir héldu áfram í nótt á Instagram-síðu samtakanna þar sem boðuð var atlaga gegn olíufélaginu sem þjónustar Hval. Þau segja að önnur langreyðurin sem var veidd í gær hafi verið kálffull.
Kristján Loftsson forstjóri Hvals sagði í samtali við Morgunblaðið að hann gefi lítið fyrir alla aðgerðarsinna, bæði innanlands og erlendis.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness kvaðst undrandi á því í gær að Landhelgisgæslan skyldi ekki vísa skipinu út fyrir íslenska lögsögu eftir að hafa slökkt á staðsetningarbúnaði sínum og haft í hótunum. Bandero hefur til þessa ekki siglt innan tólf mílna landhelgi Íslands.
Bjarni Már Magnússon, lögmaður og sérfræðingur í hafrétti, segir hótanir þurfa að ná ákveðnu stigi svo mögulegt sé að skipta sér af för Bandero innan lögsögu Íslands.
„Ef skip siglir löglega um efnahagslögsöguna og hefur ekki brotið íslensk lög, þá er almennt ekki heimilt að stöðva það eingöngu vegna gruns um að það kunni síðar að grípa til mótmæla eða einhverra aðgerða,“ segir Bjarni Már.
„En hins vegar þá getur þessi staða breyst ef skip byrjar að trufla lögmæta atvinnustarfsemi og þá erum við að tala um að það reyni til dæmis að sigla vísvitandi fyrir hvalveiðiskip eða stofna öryggi skipa í hættu.“
Ef svo ber undir geti Landhelgisgæslan stöðvað för skipsins eða farið um borð og tekið stjórn skipsins.
„Það sem ég reikna með að Landhelgisgæslan sé að skoða núna er að þetta þurfa að vera einhvers konar hótanir og svo þarf að vera eitthvað sem bendir til þess að það verði staðið við þær.“
En hún gæti beitt sér öðruvísi innan landhelginnar sem eru þessar 12 sjómílur, það þyrfti minna til að vísa þeim þaðan út?
„Það gæti verið eitthvað sem myndi þurfa skoðunarm, því þar eru valdheimildarnar meiri.“