Tugþúsunda er enn saknað eftir jarðskjálftana í Venesúela og yfir 1.700 hafa fundist látin. Fólk sem bíður fregna af ástvinum sínum í strandborginni La Guaira segir yfirvöld hafa brugðist seint og illa við.
Brátt verða liðnir sex sólarhringar frá skjálftunum stóru og enn er leitað að fólki í rústum húsa. Strandborgin La Guaira er ein af þeim sem urðu hvað verst úti í hamförunum, en þar búa um 20 þúsund manns.
Fréttateymi BBC ræddi við fólk á vettvangi þar sem verið var að reyna að finna fólk í rústum 12 hæða fjölbýlishúss.
Dýrmætur tími hafi farið til spillis
Miguel Oscar Nunez bíður fregna af einkasyni sínum sem bjó í húsinu. Hann segir þörf á meiri stuðningi frá yfirvöldum tafarlaust og óttast að ef jarðskjálftinn hafi ekki drepið son hans þá verði það vanræksla yfirvalda sem geri það.
Kevin Montilla bjó líka í húsinu, eiginkona hans og dóttir voru heima þegar skjálftarnir riðu yfir. Hann segir björgunaraðgerðir hafa hafist mjög seint og í fyrstu hafi það aðeins verið nágrannar og aðrir í borginni sem komið hafi til hjálpar. Viðbrögð stjórnvalda hafi verið máttlaus.
Björgunarsveitir frá Venesúela og Kólumbíu voru að störfum þegar BBC var á vettvangi í gær en aðstandendur sem stóðu og fylgdust með segja dýrmætan tíma hafa farið til spillis fyrstu dagana.