Saksóknari í Edition-málinu fer fram á hámarksrefsingu, 16 ára fangelsisvist, yfir Ming Ting Mancel. Verjandi hennar fer fram á sýknu.
Þetta kom fram í málflutningi þeirra fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Mancel er gefið að sök að hafa orðið dóttur sinni að bana á Edition-hótelinu í Reykjavík í fyrra. Dóttir hennar og eiginmaður fundust látin á hótelherbergi, en Mancel er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmannsins.