Nýr frjálsíþróttavöllur var vígður við Hrollaugsstaði í Suðursveit um liðna helgi við mikinn fögnuð heimafólks. Sjálfboðaliðar í Ungmennafélaginu Vísi hafa unnið að vellinum í eitt ár og segja opnun hans marka tímamót í íþróttasögu Suðursveitar.
Tómas Nói Hauksson sendi fréttastofu þessar myndir af frjálsíþróttamótinu, sem hófst á Alþjóðlega ólympíudaginn.
Á mótinu var Íslandsmet í 60 metra hlaupi kvenna utanhúss slegið. Jafnframt náðist besti tími sem skráður hefur verið í 60 metra grindahlaupi karla utanhúss. Í fyrsta sinn var keppt utanhúss í 60 metra hjólastólaspretti kvenna.