Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafði gegnt starfinu frá árinu 2022. Pétur var fyrsti ráðni sveitarstjóri Húnabyggðar, sem varð til við sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps.
Á vef Húnabyggðar segir: „Með ráðningu Svavars fær Húnabyggð öflugan stjórnanda með víðtæka reynslu af stjórnsýslu, rekstri og þjónustu hins opinbera. Sveitarstjórn telur að þekking hans, reynsla og sterk tengsl við heimabyggðina muni nýtast vel við áframhaldandi uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins.“