Um 95 milljónir Evrópubúa upplifa að minnsta kosti 35 stiga hita í dag, aðallega í austur- og suðurhluta álfunnar. Hitamet féll í Slóvakíu í gær þegar hiti mældist þar 41 stig. Það sama gerðist í Tékklandi á sunnudag þegar hiti mældist 41,9 stig.
Því fór nærri að hitamet myndi falla í Ungverjalandi í gær, hiti mældist 41,8 stig en mesti hiti sem mælst hefur er 41,9 stig í júlí 2007. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að minnst 1300 hafi farist í hitabylgjunni sem hófst fyrir rúmri viku. Stofnunin varar við því að þessi hitabylgja sé aðeins eins og æfing fyrir það sem koma skal.