Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæpt prósent í maí samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls voru gistinætur 432 þúsund á landsvísu í maí en voru 428 þúsund í maí í fyrra.
Gistinóttum fjölgaði mest á Suðurlandi eða um rúm 15 prósent og gistinóttum fjölgaði einnig á Norðurlandi, um 6,3 prósent. Gistinóttum fækkaði í öðrum landshlutum, mest á Vesturlandi og Vestfjörðum, um tæp 16 prósent.
Á fyrstu fimm mánuðum ársins var fjöldi gistinátta á hótelum nær óbreyttur miðað við sömu mánuði í fyrra. Aukningin var hálft prósent milli ára.