Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.
Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með langdrægum drónum á síðustu mánuðum. Árásirnar hafa ekki síst beinst gegn orkuinnviðum í Rússlandi. Tilgangur þeirra hefur verið að skerða tekjur stjórnvalda í Kreml og gera þeim þannig erfiðara fyrir að fjármagna stríðsrekstur sinn.
Í tilkynningu varnarmálaráðuneytisins er ekki greint frá því hvort árásirnar hafi reynst mannskæðar.
Sergey Sobyanin, borgarstjóri í Moskvu, sagði fyrr í nótt að loftvarnarkerfi hefðu skotið niður 50 dróna sem stefndu í átt til höfuðborgarinnar.
Nokkrir dagar eru síðan Rússar skutu niður 660 úkraínska dróna einn og sama daginn. Þeir hafa sjaldan verið fleiri frá upphafi stríðsins milli ríkjanna. Í síðustu viku kviknaði mikill eldur í olíuhreinsistöð suðaustur af Moskvu eftir árásir Úkraínuhers.