Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings Palestínu og EFTA. Hann sagðist vonast til að samningurinn gæti verið lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu. En hann horfir aðallega til friðarviðræðnanna sem nú eiga sér stað milli Írans og Bandaríkjanna og vonast til að samningar um vopnahlé nái til allra Miðausturlanda, þar á meðal Gaza.
„En því miður eru núverandi stjórnvöld í Ísrael og landtökufólkið, sem nýtur stuðnings yfirvalda, uppsprettan að ofbeldinu og þessum óstöðugleika í heimshlutanum,“ segir Al-Amour.
Hann vonast þó til að með aukinni viðurkenningu á sjálfstæði Palestínu verði friðvænlegra í Miðausturlöndum en þar gegni Bandaríkin lykilhlutverki.
„Bandaríkin geta lagt þá skyldu á herðar Ísraelsmönnum og Ísraelsríki að þeir verði
með í þessu ferli fyrir friði og velsæld alls heimsins.“
Það eru kosningar fram undan í Ísrael. Spurður hvort hann vonist eftir breytingum að þeim loknum segir Al-Amour að hann virði sjálfsákvörðunarrétt Ísraelsmanna.
„Ég tel að þessi ríkisstjórn sé ekki auðveld viðureignar fyrir heiminn, ekki bara fyrir Palestínumenn heldur fyrir heiminn allan. Fyrir Bandaríkjamenn, fyrir Evrópu, fyrir alþjóðasamfélagið almennt. Við vonum að framtíðin verði betri.“