Gólfhiti í nýjum húsum virðist skapa kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér, segir meindýraeyðir.
„Fólk er alltaf jafnsvekkt þegar það hringir í mig og segir: „Ég er í nýju húsi og ég sé silfurskottu, ég hélt að þetta væri ekki í nýjum húsum, ég hélt þetta væri bara í gömlum húsum.“ En það er rangt, það er mikið um útköll í ný hús,“ segir Steinar Smári Guðbergsson, meindýraeyðir.
Steinar segir silfurskottur oft berast inn í ný hús með pappakössum þegar verið er að flytja byggingarefni á staðinn. Einnig geti þær komið upp úr lögnum sem standa opnar meðan húsið er á byggingarstigi.
Fáið þið jafnmörg útköll vegna nýrra húsa og gamalla?
„Já, mér finnst það vera jafnvel meira í nýrri húsnæðum heldur en í eldri húsnæðum. Og þetta er algengara í timburhúsum heldur en steinhúsum.
Timburhúsin hafa verið algengari byggingarmáti hefur mér fundist undanfarin ár, sérstaklega í einbýli. Það er meira af felustöðum, meiri raki í veggjum, þetta er meira lifandi efni sem þær eru að hafast við í,“ segir Steinar.
Silfurskottur eru ljósfælnar og nærast helst á pappír, ryki, sykrum og lími. Steinar segir gólfhita í nýjum húsum skapa kjöraðstæður fyrir skotturnar.
„Þær fíla það betur en veggofna, það er heitara gólfið en þegar þú ert með ofna á veggjum. Ég er frekar að finna þær í stærri hópum, þær eiga auðveldara með að fjölga sér í þannig húsnæðum.“
Steinar segir silfurskottur þrífast best í 55% rakastigi en geti lifað góðu lífi þar sem er allt niður í 35% raki. Hann finni þær helst við útidyr, undir vaskaskáp inni í eldhúsi, inni á baðherbergi og í þvottahúsum.
„Þess á milli eru þær á flakkinu allan sólarhringinn eða aðallega á nóttunni þegar það er myrkur út um allt hús.“
Þannig að þær eru forvitnar?
„Já, þetta eru svona litlir Kólumbusar, ofvirkar pöddur.“
Steinar segir þó óþarft að örvænta, hægt sé að eitra fyrir vágestinum og yfirleitt dugi að gera það einu sinni.