„Allir eru reiðu­búnir að hætta á hand­töku“ - Vísir

„Allir eru reiðu­búnir að hætta á hand­töku“ - Vísir

„Allir eru reiðu­búnir að hætta á hand­töku“ - Vísir

Rodney Adam Coronado, eða Rod, leiðangursstjóri Aðgerðar 86, ræddi stöðu mála í Reykjavík síðdegis í dag en hann erum borð í skipinu Bandero. Aðgerð 86, sem stofnun Paul Watson hvalveiðiaktívista, boðaði til snýst um að binda endi á hvalveiðar Íslendinga. Nafnið er vísun í aðgerð sem Rod tók þátt í árið 1986 þegar tveimur hvalveiðiskips Hval hf. var sökkt í Reykjavíkurhöfn.

„Fyrst af öllu vil ég biðja íslensku þjóðina afsökunar því þegar ég kom til Íslands fyrir fjörutíu árum kom ég í skjóli nætur. Og ég fór í skjóli nætur, svolítið eins og glæpamaður. Mér fannst það nauðsynlegt vegna ógnarinnar við alþjóðlegt bann við hvalveiðum og ógnarinnar við tilvist langreyða,“ segir Rod Coronado, leiðangursstjóri Aðgerðar 86, í Reykjavík síðdegis.

Rod kom til Íslands árið 1986 með David Howard og vörðu þeir mánuði í að kynna sér aðstæður, safna upplýsingum og heimsækja hvalastöðina.

Forsíða DV þann 10. nóvember 1986 þar sem sjá má Hval 6 og Hval 7 sökkva.Tímarit.is.

„Þann 8. nóvember ákváðum við að grípa til aðgerða. Og aftur, sú aðgerð var án ofbeldis. Við fórum í tóma hvalstöðina án þess að nokkur væri þar og eyðilögðum eins mikið af vélbúnaði og mögulegt var sem var notaður til að drepa þær langreyðar sem voru veiddar í bága við bannið á hvalveiðum í atvinnuskyni,“ segir Rod og vísar þar í samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um bann við hvalveiðum í atvinnuskyni sem var undirrituð árið 1985.

„Við fórum síðan til Reykjavíkurhafnar þar sem við fórum um borð í Hval 6 og Hval 7. Ég hef sjálfur verið vélstjóri á Sea Shepherd áður og vissi því hvar ég ætti að finna botnlokana til að hleypa sjónum inn.“

Hann ítrekar að þeir hafi ekki viljað skaða neina manneskju. Hann hefði getað sökkt Hvali 8 en hætti við þar sem einn maður var sofandi um borð.

Stefna að því að sökkva skipunum bókstaflega eða táknrænt

Rod segir skipverjara Bandero almennt í góðu skapi. Um 27 eru um borð í skipinu og ætla þau öll að dvelja þar þar til að hvalveiðiskipin tvö eru tekin úr notkun. 

„Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku til að vernda þessa hvali. Þannig að ef Landhelgisgæsla Íslands vill grípa til aðgerða til að stöðva þessa herferð þá er betra að hún hafi 27 fangaklefa tilbúna fyrir okkur,“ segir hann.

Hann tekur fram að engin vopn séu um borð í skipinu.

„Við gerum ekki starfsmenn skipanna að skotmörkum. Við teljum Landhelgisgæslu Íslands ekki vera óvin okkar. Við teljum íslensku þjóðina ekki vera óvini okkar. Við erum að beina spjótum okkar að Hval 8 og Hval 9,“ segir Rod. 

„Þetta eru eyðileggingartækin sem við viljum sjá tekin úr notkun með ofbeldislausum aðferðum, alveg eins og mér tókst að sökkva þessum skipum án þess að skaða neinn. Það væri sama markmið og við höfum í dag.“

Svo þið eruð að stefna á að sökkva skipunum aftur?

„Annaðhvort bókstaflega eða táknrænt, en ég er að vona, eins og ég sagði, að við getum gert eitthvað löglega.“

Einn maður beri ábyrgð

Rod kallar eftir aðstoð íslensku þjóðarinnar. Einungis einn maður beri ábyrgð á drápi yfir þúsund hvala.

„Þetta er eitthvað sem við getum ekki gert ein. Við þurfum að allur heimurinn standi með okkur. Margar þjóðir heims standa þegar með okkur, standa með Alþjóðahvalveiðiráðinu og hvalveiðibanni þess. Það er aðeins einn maður á Íslandi sem ógnar áframhaldandi tilvist langreyða,“ segir hann.

„Frá því að hvalveiðibannið tók gildi hefur Kristján Loftsson borið ábyrgð á drápi yfir 1074 hvala. Engum einum manni ætti að vera veitt heimild af stjórnvöldum til að ógna tilvist heillar dýrategundar.“

Þór eltir Bandero nærri Hvalfirði

„Ég var einmitt að horfa út um gluggann á varðskip Landhelgisgæslunnar, sem er hér um tólf mílur á bakborða. Það hefur haldið þeirri stöðu síðan í gær,“ segir Rod.

Varðskipið Þór lét úr höfn í gærkvöldi og fylgir nú skipinu Bandero eftir. Um borð eru sérsveitarmenn en á korti Marine Traffic má sjá að skipið er rétt fyrir utan Kollafjörð, nærri höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum mbl er Hvalur 9 á leið til Hvalfjarðar með tvær langreyðar og er búist við skipinu undir kvöld.

Skipið Bandero er í eigu Paul Watson, hvalaverndaraktívista, og var því siglt inn í íslenska efnahagslögsögu á laugardag. Fyrst um sinn urðu forsvarsmenn ekki við beiðni Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu sína og báru fyrir sig að búnaðurinn væri ónýtur. 

Eftir að hafa verið gert að senda gæslunni staðsetningu sína á klukkustundar fresti hóf Bandera að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skipsins.F

#allir #eru #handtöku #hætta #reiðubúnir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262903395d/-allir-eru-reidubunir-ad-haetta-a-handtoku-

📰 Aðrar fréttir

„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 0
„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir
„Þegar hún sá hann [hnífinn] nefndi hún að það hefði ekki verið það sem hún hafði hugsað sér. En hún hafði ekki um annað að velja,“ sagði Ming fyrir d...
„Reiðubúnir að leggja lífið að veði“
📅 29.06.2026 👁️ 0
„Reiðubúnir að leggja lífið að veði“
Leiðangursstjóri á Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, segir skipverja tilbúna að vera eins lengi og þörf er á við Íslandsstrendur til að stöðva hv...
Lönduðu tveimur langreyðum
📅 29.06.2026 👁️ 0
Lönduðu tveimur langreyðum
Hvalveiðiskipið Hvalur 9 landaði tveimur langreyðum í hvalstöðinni í Hvalfirði laust fyrir klukkan 18 í dag.Samkvæmt mbl.is hafa níu dýr verið veidd á...
Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 0
Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum - Vísir
Greint er frá ráðningunni á vef Stjórnarráðsins. Þar er greint frá því að Margrét Kristín hafi verið skipuð aðstoðarlögreglustjóri við embættið árið 2...
„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 0
„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ - Vísir
Sigurjón segir að ef Íslendingar fari með óbreytt kerfi inn í Evrópusambandið sé ekkert sem komi í veg fyrir að erlend fyrirtæki geti keypt upp „íslen...
Lokar fyrir að­gengi að Reykja­fossi og Fossalaug - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 0
Lokar fyrir að­gengi að Reykja­fossi og Fossalaug - Vísir
„Þetta er orðið gott í þeirri mynd sem þetta er núna,“ segir Dagur Torfason, landeigandi að Fossalaug og Reykjafossi, í samtali við fréttastofu. Landi...
Gagn­rýnir Land­helgis­gæsluna vegna Bandero og ýtukarl á átt­ræðis­aldri - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 0
Gagn­rýnir Land­helgis­gæsluna vegna Bandero og ýtukarl á átt­ræðis­aldri - Vísir
Vitnaleiðslum lauk í Edition málinu nú síðdegis. Við förum yfir réttarhöldin með fréttamanni í myndveri. Sex eru látnir og fleiri slasaðir eftir skotá...
Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum
📅 29.06.2026 👁️ 0
Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum
Dómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hún tekur við embættinu á miðvikudag. Margrét er ei...
Desperate search for earthquake survivors continues outside Caracas
📅 29.06.2026 👁️ 0
Desperate search for earthquake survivors continues outside Caracas
The BBC's Will Grant reports on the efforts to dig out survivors in the port city of Catia la Mer.
Fannst hún niðurlægð í áheyrnarprufu - Vandræðalegt upphaf á goðsagnakenndum ferli
📅 29.06.2026 👁️ 0
Fannst hún niðurlægð í áheyrnarprufu - Vandræðalegt upphaf á goðsagnakenndum ferli
Leikkonan Michelle Pfeiffer hefur sagt frá því hvernig hún fékk sitt fyrsta stóra hlutverk í kvikmyndinni Grease 2 og hvernig það var vandræðaleg byrj...
Þorsteinn Víglundsson: Vil sjá dýpri umræðu sem tekur mið af breyttum aðstæðum í heiminum
📅 29.06.2026 👁️ 0
Þorsteinn Víglundsson: Vil sjá dýpri umræðu sem tekur mið af breyttum aðstæðum í heiminum
Umræðan um Evrópumálin þarf að dýpka en hún er í dag mest endurómur umræðunnar fyrir 15, 20 eða 30 árum. Það þarf að ræða betur um kosti og galla gjal...
Ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál
📅 29.06.2026 👁️ 0
Ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál
Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára, eins og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður hvatti til í ...
Flaug niður Kamba í sviflínu alveg að verða níræður
📅 29.06.2026 👁️ 0
Flaug niður Kamba í sviflínu alveg að verða níræður
Hilmar R. Sölvason, sem verður 90 ára í desember næstkomandi hefur alltaf verið mikill ævintýramaður og það sannaði sig heldur betur þegar hann fór í ...
Fórnarlömb og árásarmaður í Stade tengjast fjölskylduböndum
📅 29.06.2026 👁️ 0
Fórnarlömb og árásarmaður í Stade tengjast fjölskylduböndum
Lögregla í Þýskalandi segir að fórnarlömb og árásarmaður í skotárás í bænum Stade í norðurhluta landsins í dag hafi tengst fjölskylduböndum.Sex manns ...
Trump færð meiri völd
📅 29.06.2026 👁️ 0
Trump færð meiri völd
Trump færð meiri völd Dóm­ur Hæstirétt­ar Banda­ríkj­anna stað­fest­ir að Banda­ríkja­for­seti megi reka emb­ætt­is­menn sjálf­stæðra stofn­ana og opn...
Enn aukast valdheimildir Bandaríkjaforseta
📅 29.06.2026 👁️ 0
Enn aukast valdheimildir Bandaríkjaforseta
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur enn einu sinni snúið eigin fordæmi.Í dómi sem kveðinn var upp í dag útvíkkaði rétturinn vald forseta landsins og staðf...
Kynferðisbrot og meiðyrði Trumps standa
📅 29.06.2026 👁️ 0
Kynferðisbrot og meiðyrði Trumps standa
Kynferðisbrot og meiðyrði Trumps standa Banda­ríkja­for­seti var dæmd­ur fyr­ir til greiðslu hárra skaða­bóta fyr­ir kyn­ferð­is­brot og meið­yrði. Hæ...
Fresta frekari viðgerðum á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum fram yfir mesta ferðatíma
📅 29.06.2026 👁️ 0
Fresta frekari viðgerðum á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum fram yfir mesta ferðatíma
Frekari viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið frestað fram til 17. ágúst. Mikil rigning hefur valdið töfum á viðhaldsvinnunni sem ...
Maddy Cusack kept mental health secret over stigma fears, inquest told
📅 29.06.2026 👁️ 0
Maddy Cusack kept mental health secret over stigma fears, inquest told
The former Sheffield United player had feared being ridiculed and stigmatised, her inquest hears.
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Gusuæðið, borgarráð og grásleppuskúr
📅 29.06.2026 👁️ 1
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Gusuæðið, borgarráð og grásleppuskúr
Undanfarið hefur gusuæði runnið á landann. Hafa til að mynda konur á svokölluðu kulnunarskeiði í stórum stíl lært að verða gusumeistarar eða mæta regl...
Deilur við nágranna um bílastæði við náttúruperlur: „Ég má hefta aðgang“
📅 29.06.2026 👁️ 1
Deilur við nágranna um bílastæði við náttúruperlur: „Ég má hefta aðgang“
Deilur við nágranna um bílastæði við náttúruperlur: „Ég má hefta aðgang“ Land­eig­anda hef­ur mis­boð­ið um­gengni við Foss­laug og Reykja­foss. Hann ...
Resident doctors in England accept pay deal and end strikes
📅 29.06.2026 👁️ 1
Resident doctors in England accept pay deal and end strikes
Doctors have been locked in a three-year dispute with the government, resulting in several rounds of strikes.
Fósturfaðirinn á­fram í gæslu - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Fósturfaðirinn á­fram í gæslu - Vísir
Þetta staðfestir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum, í samtali við fréttastofu en Rúv greindi fyrst frá. Gæsluva...
Edition-málið: Höfðu hvorki sofið né borðað í nær tvo sólarhringa
📅 29.06.2026 👁️ 1
Edition-málið: Höfðu hvorki sofið né borðað í nær tvo sólarhringa
Ming Ting Mancel segir Catherine dóttur sína hafa beðið föður sinn um að stinga sig aftur eftir að dauði hennar dróst á langinn. Mancel er ákærð fyrir...
Ástralskur vinur Atla Steins rak augun í skemmtilegt atriði í skipulagi Skerjafjarðar
📅 29.06.2026 👁️ 1
Ástralskur vinur Atla Steins rak augun í skemmtilegt atriði í skipulagi Skerjafjarðar
Skipulagsmál geta verið skemmtileg eins og sést af frásögn blaðamanns Morrgunblaðsins, Atla Steins Guðmundssonar, sem búsettur er á Spáni. Þar segir h...
Samningur um háskólasamstæðu undirritaður
📅 29.06.2026 👁️ 1
Samningur um háskólasamstæðu undirritaður
Á Hólum í Hjaltadal var í dag formlega skrifað undir samning um háskólasamstæðu sem gerir Háskóla Íslands að samstæðuháskóla og Hólaskóli verður Háskó...
Katrín lauk Þriggja tinda þrekáskorun - Safnar fyrir góðan málstað
📅 29.06.2026 👁️ 1
Katrín lauk Þriggja tinda þrekáskorun - Safnar fyrir góðan málstað
Prinsessan af Wales, Kate Middleton, lauk afar krefjandi gönguferð um helgina til að safna peningum fyrir krabbameinsmeðferð.Katrín deildi mynd af sér...
Andstyggileg skemmdarverk við leikskólann Norðurberg
📅 29.06.2026 👁️ 1
Andstyggileg skemmdarverk við leikskólann Norðurberg
Skemmdarverk blöstu við starfsfólki leikskólans Norðurbergs í Hafnarfirði eru þau mættu til vinnu í morgun (mánudag). Nútíminn greindi frá þessu en An...
WhatsApp to let people chat without swapping phone numbers
📅 29.06.2026 👁️ 1
WhatsApp to let people chat without swapping phone numbers
The app's new usernames feature will be rolled out globally over the next few months.
Harry still hoping to bring Meghan and children on UK visit
📅 29.06.2026 👁️ 1
Harry still hoping to bring Meghan and children on UK visit
Despite arguments over security, Prince Harry is still expected to bring his wife and children to the UK.
Ráðherra eigi að gæta betur hagsmuna eigin kjördæmis
📅 29.06.2026 👁️ 1
Ráðherra eigi að gæta betur hagsmuna eigin kjördæmis
Enn er óvíst hvenær ferjan Baldur snýr aftur til Breiðafjarðar. Ferjan var tekin úr siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar í byrjun mánaðar til a...
Tóku hátt í 200 kannabisplöntur í Reykholti
📅 29.06.2026 👁️ 1
Tóku hátt í 200 kannabisplöntur í Reykholti
Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á tæplega 200 kannabisplöntur, búnað til ræktunar og önnur meint fíkniefni í Reykholti í Bláskógabyggð í gær. Rúnar ...
Leið­rétta rangar kröfur um kíló­metra­gjald af seldum bílum - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Leið­rétta rangar kröfur um kíló­metra­gjald af seldum bílum - Vísir
Leiðréttingin er sögð taka nokkra daga en krafa vegna kílómetragjalds eiga að uppfærast fyrir eindaga 15. júlí.  Í tilkynningu frá Skattinum biður sto...
Frank Gardner: Navy plans reflect sea change in how wars are fought
📅 29.06.2026 👁️ 1
Frank Gardner: Navy plans reflect sea change in how wars are fought
The upcoming defence plan reflects rapid changes in drone warfare, our security correspondent writes.
Burnham's Manchesterism could change the UK, but is not yet a full economic plan
📅 29.06.2026 👁️ 1
Burnham's Manchesterism could change the UK, but is not yet a full economic plan
Andy Burnham's speech depicted a different way of seeing and running the UK, though there are many other questions about the detail.
Fósturfaðir grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni áfram í haldi
📅 29.06.2026 👁️ 1
Fósturfaðir grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni áfram í haldi
Fertugur karlmaður, sem grunaður er um að hafa brotið ítrekað kynferðislega gegn barni á sem var í fóstri á heimili hans, hefur verið úrskurðaður í gæ...
„Hlægi­legt þvaður gegn lýð­ræði!“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Hlægi­legt þvaður gegn lýð­ræði!“ - Vísir
Þetta segir Guðlaugur Þór í tengslum við frétt Vísis frá því fyrr í dag þar sem greint var frá því að Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar hafi mátt þ...
Í jóla­skapi í júní - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Í jóla­skapi í júní - Vísir
Hildigunnur Birgisdóttir er fædd árið 1980 og hefur verið fulltrúi okkar Íslendinga á hinni virtu hátíð Feneyjartvíæringnum. Í listsköpun sinni lítur ...
Lokar aðgengi að Reykjafossi og Fosslaug
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lokar aðgengi að Reykjafossi og Fosslaug
Lokar aðgengi að Reykjafossi og Fosslaug Land­eig­andi seg­ir land­ið við vin­sæla ferða­mannastaði í Skaga­firði nú vera í rækt og hafn­ar því að al­...
Fornleifauppgröftur á lóð elsta húss Laugavegar
📅 29.06.2026 👁️ 1
Fornleifauppgröftur á lóð elsta húss Laugavegar
Fornleifauppgröftur fer fram á lóð Laugavegar 1 sem stendur, einu af elstu húsum Reykjavíkur. Húsið var nýlega rifið en verður byggt upp að nýju í upp...
Haldlögðu töluvert magn af meintu kannabisi í Reykholti
📅 29.06.2026 👁️ 1
Haldlögðu töluvert magn af meintu kannabisi í Reykholti
Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á töluvert magn af „meintum kannabisplöntum, ræktunarbúnaði og meintum fíkniefnum“ í Reykholti í Bláskógabyggð í gær...
Lögðu hald á töluvert af meintu kannabisi í Reykholti
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lögðu hald á töluvert af meintu kannabisi í Reykholti
Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á töluvert af „meintum kannabisplöntum, ræktunarbúnaði og meintum fíkniefnum“ í Reykholti í Bláskógabyggð í gær. Ein...
Segir Einar Þorsteins hafa ráðist að sér með ógeðfelldum hætti
📅 29.06.2026 👁️ 0
Segir Einar Þorsteins hafa ráðist að sér með ógeðfelldum hætti
Segir Einar Þorsteins hafa ráðist að sér með ógeðfelldum hætti Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins Mynd: Víkingur Snorri Másson, varaformaður Miðflo...
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar: Af hverju lögðum við upp í þessa ferð?
Snorri opnar sig um fjaðrafokið: „Ósvífin og ótrúlega óheiðarleg og mjög sár brella“
📅 29.06.2026 👁️ 1
Snorri opnar sig um fjaðrafokið: „Ósvífin og ótrúlega óheiðarleg og mjög sár brella“
Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, segir umræðuna sem skapaðist í vetur í tengslum við regnbogafánann hafa verið ósvífna og óheiðarlega, hvorki...
Franskur maður ákærður fyrir ólöglega farþegaflutninga á Selfossi
📅 29.06.2026 👁️ 1
Franskur maður ákærður fyrir ólöglega farþegaflutninga á Selfossi
Frönskum manni á sextugsaldri hefur verið birt ákæra í Lögbirtingablaðinu. Ákærandi er Lögreglustjórinn á Suðurlandi, en manninum er gefið að sök brot...
Ánægja leigjenda Félagsbústaða aldrei mælst meiri
📅 29.06.2026 👁️ 1
Ánægja leigjenda Félagsbústaða aldrei mælst meiri
Ánægja leigjenda Félagsbústaða hefur aldrei mælst meiri samkvæmt niðurstöðu þjónustukönnunar fyrir árið 2026. Segjast yfir 86% leigjenda vera mjög eða...
Einn handtekinn í lögregluaðgerð í Reykholti
📅 29.06.2026 👁️ 1
Einn handtekinn í lögregluaðgerð í Reykholti
Um nýliðna helgi var lögregluaðgerð
Hetja bauð sérsveitinni far og átti stóran þátt í handtöku hættulegs glæpamanns – Myndband
📅 29.06.2026 👁️ 1
Hetja bauð sérsveitinni far og átti stóran þátt í handtöku hættulegs glæpamanns – Myndband
Óþekktur sendibílstjóri hefur verið kallaður hetja eftir að hafa aðstoðað vopnaða lögreglumenn við að handsama mann sem grunaður var um alvarlega líka...
Ex-MP Craig Williams pleads guilty over general election betting offence
📅 29.06.2026 👁️ 1
Ex-MP Craig Williams pleads guilty over general election betting offence
Williams was MP for Montgomeryshire and an aide to then-Prime Minister Rishi Sunak before the 2024 election.