Undanfarið hefur gusuæði runnið á landann. Hafa til að mynda konur á svokölluðu kulnunarskeiði í stórum stíl lært að verða gusumeistarar eða mæta reglulega í gusur þar sem svokallaður gusumeistari sveiflar blævæng eða handklæði eins og nautabani undir geggjaðri tónlist að smekk viðkomandi gusumeistara. Einn af vinsælustu gusustöðunum er gamall grásleppuskúr við Ægisíðu. Sú sem þetta skrifar hefur mætt þar og skemmt sér vel enda um nokkurs konar heilsudjamm að ræða.
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Gusuæðið, borgarráð og grásleppuskúr