Deilur við nágranna um bílastæði við náttúruperlur: „Ég má hefta aðgang“
Landeiganda hefur misboðið umgengni við Fosslaug og Reykjafoss. Hann segir nágranna sinn rukka fyrir bílastæði en firra sig ábyrgð á svæðinu. Lög tryggja almenningi för um óræktað land.
Dagur Torfason, bóndi og landeigandi, segir nágranna sinn hagnast á ferðamönnum sem heimsækja Fosslaug og Reykjafoss á landi í hans eigu á meðan hann sitji uppi með ábyrgð á svæðinu.
Heimildin greindi frá því í dag að Dagur hefði sett upp skilti þar sem fram kemur að umferð um land hans sé óheimil. Beindi hann tilmælum til fólks í ferðaþjónustu að skipuleggja ekki ferðir þangað.
„Sá tími að við látum það viðgangast að annar aðili rukki fyrir þjónustu fyrir ferðamenn sem koma vegna aðdráttarafls á okkar landi en firri sig allri ábyrgð á svæðinu og skili engu er liðinn,“ segir Dagur í viðbót við færsluna í Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar þar sem hann tilkynnti um lokunina. Færslan hefur vakið mikla athygli og umræður.
Í samtali við Heimildina segir Dagur ágreining hafa ríkt við nágranna sinn sem rekur bílastæði þar sem fólk leggur til …